Fórnarlambafræði - þáttagreining - heimilisofbeldi
Í bókinni er fjallað um helstu einkenni ofbeldis. Mörg einkenni koma saman við geranda ofbeldis gagnvart Söru Björk sem segir sögu sína í þáttunum "Heimilisofbeldi".
1. Hvað er átt við með því að það sjáist ekki alltaf utan á þeim sem eru beittir heimilisofbeldi?
2. Hvernig kemur það fram í tilfelli Söru Bjarkar?
Í bókinni er fjallað um hvers vegna fórnarlömb yfirgefa ekki ofbeldismanninn
3. Hvers vegna yfirgaf Sara ekki ofbeldismanninn?
4. Hvað myndir þú gera í svipuðum aðstæðum?
5. Hvað er átt við með því að tilfelli Söru gangi gegn staðalmyndum um heimilisofbeldi?
6. Hvað er átt við með rauðum flöggum?
7. Hversu trúverðuga teljið þið þolandann vera? Telur þú að frásögn hennar sé sönn? Hvers vegna/ekki?
8. Hvað finnst þér um að ekki hafi verið hægt að ákæra gerandann fyrir dómi?
9.-10. Hvernig tengist kenning Freud barnsföður Söru Bjarkar miðað við hennar framburð (I - Ego - Superego)?