Notaðu einn af prufuaðgöngunum til að prófa verkefni og próf.
Notandanafn: gestur1 til gestur1000
Lykilorð: Próf2025!
Veldu númer af handahófi, til dæmis
gestur177 eða gestur853,
til að minnka líkur á að fleiri noti sama aðgang.
Skráðu þig inn með Login
og veldu síðan verkefnabók.
Nemendur – stofna aðgang og velja bók
Með persónulegum aðgangi vinnur þú verkefnin á þínu eigin nafni.
Smelltu á Login efst í hægra horni síðunnar.
Veldu Create new account og búðu til
aðgang með nafni og tölvupósti.
Staðfestu skráninguna með tenglinum í tölvupóstinum sem þú færð.
Farðu aftur á forsíðuna og veldu verkefnabókina
sem þú ætlar að vinna í.
Smelltu á Enrol me in this course.
Smelltu á Enrol me til að ljúka skráningu.
Ekki þarf lykilorð fyrir skráningu í áfangann.
Kennarar – aðgangur og stillingar
Fá kennaraaðgang
Smelltu á Login og veldu
Create new account ef þú átt ekki aðgang.
Staðfestu skráninguna í tölvupóstinum sem þú færð.
Sendu póst á
stafbok@stafbok.is
og óskaðu eftir kennaraheimildum að öllum áföngum.
Skoða virkni nemenda
Opnaðu áfangann og farðu í Participants.
Veldu nemanda og síðan Outline report.
Leyfa fleiri tilraunir í númeruðum verkefnum
Oft er sjálfgefið að nemendur geti unnið hvert verkefni
einu sinni.
Til að breyta fjölda tilrauna skaltu opna verkefnið
og fara í
Settings → Grade → Attempts allowed.
Skipta nemendum í hópa (valfrjálst)
Farðu í Participants → Groups.
Veldu Create group og búðu til hóp.
Veldu hópinn og smelltu á
Add/remove users
til að bæta nemendum við.
Hvaða bækur henta mér?
Bláu bækurnar eru fyrir starfsbraut
og nemendur með annað móðurmál.
Hinar bækurnar eru fyrir almennt nám.