Fórnarlambafræði: Heimasíðugreining
Ísland.is er upplýsinga- og þjónustuveita opinberra aðila á Íslandi. Þar getur fólk og fyrirtæki fengið upplýsingar og notið margvíslegrar þjónustu hjá opinberum aðilum á einum stað í gegnum eina gátt. Meginmarkmið Ísland.is er að einstaklingar og fyrirtæki geti afgreitt erindi sín við stjórnsýslu ríkis og sveitarfélaga, hvenær sem er, hvar sem er og án tafar. Einnig geti einstaklingar og fyrirtæki fengið upplýsingar um sín mál og fylgst með stöðu þeirra. Einstaklingum er veittur aðgangur að persónubundnum upplýsingum um sig í skrám opinberra aðila. Á vefnum má finna mikið af nytsamlegum upplýsingum. Þar á meðal geta þolendur afbrota fengið upplýsingar um viðbrögð og ferli máls. Farðu inn á síðuna https://island.is/. Undir Opinber þjónusta > Menntun & mannlíf > Borgarinn > Lögbrot og refsing finnur þú upplýsingar um viðbrögð þolenda við afbroti og ferli máls.
https://vefur.island.is/thjonusta/menntun-og-mannlif/borgarinn/logbrot-og-refsing/
Upplýsingar fyrir þolendur afbrota, bæklingur á vef dómsmálaráðuneytis (pdf, 339 kb)
1. Á hverju hefst almennur ferill máls? (linkur 2)
2. Á hverju líkur almennur ferill máls? (linkur 2)
3. Hvað kallast íslenskir dómstólar? (linkur 1)
4. Hvað er átt við með ákærufrestun? (linkur 1)
5. Ertu sammála því úrræði? (rökstuðningur) (linkur 1)
6. Nefndu og lýstu þremur tegundum dóma. (linkur 1)
7. Hvar afplána börn á aldrinum 15 til 18 ára dóma í flestum tilvikum? (linkur 1)
8. Í hvaða tilvikum er veitt reynslulausn eftir 2/3 hluta dóms? (linkur 1)
9. Í hvaða tilvikum er veitt reynslulausn eftir 1/2 hluta dóms? (linkur 1)
10. Í hvaða tilvikum er veitt reynslulausn eftir 1/3 hluta dóms? (linkur 1)
11. Telur þú að þessi síða sé trúverðug og gögnin sem birtast á síðunni séu áreiðanleg (hvers vegna eða hvers vegna ekki)?