Fórnarlambafræði: Heimasíðugreining (gervigreind)
Verkefni: Réttarkerfið og dómsmál
Markmið
Að öðlast skilning á því hvernig réttarkerfið virkar fyrir þolendur og brotamenn, og þjálfa gagnrýna hugsun gagnvart upplýsingagjöf og með notkun heimilda. Verkefnið byggir á því að afla upplýsinga sjálfstætt, fá aðstoð frá gervigreind og meta styrkleika og veikleika beggja aðferða.
Þriggja skrefa nálgun
1. Sjálfstæð vinna (án gervigreindar)
Farðu inn á https://island.is og fylgdu slóðinni: Lögbrot og refsing
Eða beint: https://vefur.island.is/thjonusta/menntun-og-mannlif/borgarinn/logbrot-og-refsing
Lestu upplýsingarnar þar og opnaðu einnig bæklinginn frá dómsmálaráðuneytinu („Upplýsingar fyrir þolendur afbrota“ – PDF-skrá). Skrifaðu svör við spurningunum hér fyrir neðan út frá lestri og túlkun. Notaðu eigið orðalag.
- Á hverju hefst almennur ferill máls?
- Á hverju líkur almennum ferili máls?
- Hvað kallast íslenskir dómstólar?
- Hvað er átt við með ákærufrestun?
- Ertu sammála því úrræði? (Rökstuddu)
- Nefndu og lýstu þremur tegundum dóma.
- Hvar afplána börn á aldrinum 15 til 18 ára dóma í flestum tilvikum?
- Í hvaða tilvikum er veitt reynslulausn eftir 2/3 hluta dóms?
- Í hvaða tilvikum er veitt reynslulausn eftir 1/2 hluta dóms?
- Í hvaða tilvikum er veitt reynslulausn eftir 1/3 hluta dóms?
- Telur þú að þessi síða sé trúverðug og gögnin sem birtast þar séu áreiðanleg? Rökstuddu.
2. Aðstoð með gervigreind
Eftir að þú hefur unnið úr efni og svarað spurningunum sjálfur getur þú spurt gervigreindarspjall (eins og ChatGPT) t.d.:
- „Útskýrðu hvernig ferli refsiviðurlaga virkar á Íslandi.“
- „Hvað merkir ákærufrestun í íslensku réttarkerfi?“
- „Hvaða dómtegundir eru algengar á Íslandi og hvað aðgreinir þær?“
- „Hvað felst í reynslulausn í íslensku fangelsiskerfi?“
- „Er íslenskt réttarkerfi gott?
Markmiðið er ekki að fá bein svör heldur að dýpka skilning með því að bera saman það sem þú lærðir sjálfur við aðrar útskýringar og mögulega ný sjónarhorn.
3. Samanburður og niðurstaða
Skrifaðu lokahluta verkefnisins þar sem þú:
- Lýsir stuttlega hvernig þér gekk að svara spurningunum sjálfur.
- Útskýrir hvernig gervigreind hjálpaði þér eða ekki.
- Greinir hvað var gagnlegt við svörin frá AI og hvað þú telur að þurfi að varast.
- Metur hvort það sé ástæða til að treysta svona forritum þegar fjallað er um viðkvæm og lögfræðileg málefni.
Lokaniðurstaðan skal skrifuð í þínum eigin orðum og byggja á samanburði á þinni vinnu og því sem AI kom með.