Breski stéttarreiknirinn
Á vefsvæði BBC má finna breska stéttareikninn. BBC tók höndum saman við félagsfræðinga frá fremstu háskólum til að greina breska stéttarstöðu. Þeir könnuðu meira en 161.000 manns og komu með líkan sem samanstendur af sjö hópum. Notaðu þessa reiknivélina til að finna út hvar þú gætir ímyndað þér að foreldrar þínir passar inn. Ef þú metur báða foreldra þína verður þú að deila í tvo. Skoaðuðu jafnframt gengi breska pundsins og deildu tekjunum í íslenskum krónum í pund til að fá niðurstöðuna í breskum pundum og margfaldaðu svo með 12.
1. Hvaða stéttarniðurstöðu fékkst þú?
2. Hvar í röðinni er sú stétt?
3. Hvað þýðir að vera í þeirri stétt á Bretlandi?
4. Hvaða stétt telur þú að foreldrar þínir tilheyri á Íslandi?
5. Telur þú að ójöfnuður sé mikill á Íslandi miðað við ójöfnuð í heiminum?
6. Telur þú að ójöfnuður á Íslandi sé mikill? Hvers vegna?
7. Hve hátt hlutfall þeirra sem vinna við ummönnun og þjónustu hafa meira en eina milljón króna í mánaðarlaun?
8. Hve hátt hlutfall stjórnenda hafa meira en eina milljón króna í mánaðarlaun?
9. Berðu saman laun þeirra sem vinna við þjónustu og ummönnun saman við stjórnendur. Hvað kemur í ljós?