Félagsleg lagsskipting: Ritun 1 (gervigreind)
Verkefni: Félagsleg lagskipting – sjálfstæð hugsun og gervigreindarstuðningur
Í þessu verkefni átt þú að skrifa texta um félagslega lagskiptingu með hjálp gervigreindar – en ekki með því að afrita svör. Markmiðið er að þú ræðir efnið út frá eigin skilningi, notar gervigreind sem stuðning og lærir að skrifa vel uppbyggðan texta.
Lengd: 150–200 orð
Letur: 12 punkta
Línubil: 1,5
Jöfnun: Miðjujafnað (justify)
Mál: Gæta skal að stafsetningu og málfari
Skref 1: Þinn eigin texti
Skrifaðu sjálf(ur) stuttan texta um félagslega lagskiptingu. Þú getur notað hugtök og dæmi eins og:
Gini-stuðull, Tekjujöfnuður, Hástétt, Millistétt, Lágstétt, Lokuð félagsleg lagskipting, Opin félagsleg lagskipting, Karmaskuld, Erfðastéttakerfi, Dalítar, Dulið erfðastéttakerfi, Innvensl, Útvensl, Kaupmáttur, Tengsl tekjudreifingar og kaupmáttar, Hópar sem standa höllum fæti, Kerfisbundinn ójöfnuður, Kuznets kúrfan, Bell kúrfan, Efnahagsleg kerfi og hnattvæðing, Oxfam, Hátekjulönd, Millitekjulönd, Lágtekjulönd, Þróunarlönd, Samvirknikenningar, Davis og Moore, Hugmyndafræði kapítalismans, Átakakenningar, Samskiptakenningar, Marxísk bylting, Kommúnismi, Kapítalismi, Aðskilnaðarlög, Heimalönd, Félagslegur hreyfanleiki, Lágréttur félagslegur hreyfanleiki, Lóðréttur félagslegur hreyfanleiki, Tákn um félagslega lagskiptingu, Titanic
Skref 2: Aðstoð frá gervigreind
Spurðu gervigreind t.d.:
„Geturðu skrifað 150–200 orða texta um félagslega lagskiptingu, með dæmi úr Titanic og kenningum í félagsfræði?“
Afritaðu það sem kemur frá AI
Skref 3: Samanburður og lokatexti
- Berðu saman eigin texta og texta gervigreindarinnar.
- Hvað fannst þér vel gert í þínu eigin svari? Hvað hjálpaði AI með?
- Skrifaðu svo lokatexta í Word með réttum uppsetningarkröfum (sjá efst). Lokatextinn á að byggja á þinni rödd og sameina það besta úr báðum heimildum.
Ígrundun í lokin
Í stuttri málsgrein:
Hvernig hjálpaði gervigreind þér við að skrifa textann?
Hvaða hluta þurftir þú að hugsa sjálf(ur)?
Ertu ánægð(ur) með heildarniðurstöðuna?