Félagsleg lagsskipting: Heimasíðugreining
Alþjóðabankinn er meðal stærstu og áhrifamestu alþjóðastofnana á sviði þróunarsamvinnu í heiminum. Hlutverk bankans er að stuðla að efnahagslegri og félagslegri uppbyggingu þróunarlanda. Bankinn starfar með stjórnvöldum hlutaðeigandi ríkja og veitir þeim aðstoð í formi lána, styrkja og ráðgjafar. Ísland á víðtækt samráð við Norðurlöndin og Eystrasaltsríkin um stefnumótun innan Alþjóðabankans en þessi lönd mynda eitt kjördæmi bankans. Á opinberu vefsvæði bankans er að finna tölfræði upplýsingar um fjölmarga þætti sem tengjast þjóðum heimsins. Í þessu verkefni ætlum við að skoða gagnabanka Alþjóðabankans. Farðu inn á vefsvæðið https://data.worldbank.org/. Á miðri síðunni er leitargluggi þar sem þú getur slegið inn þær upplýsingar sem þú vilt fá. Þá má einnig finna mikið af upplýsingum með þvi að skoða forsíðuna - what you can learn with open data. Þú ætlar að fjalla um einhver 3 málefni sem þú finnur á síðunni.
1. Hver eru málefnin? Skilgreining þannig að allir geti skilið.
2. Hvaða gögn eru til um málefnin og hvað sýna gögnin?
3. Hvað finnst þér um þetta - hver er þín skoðun?
Við ætlum að skoða gini stuðulinn sem mælir misskiptingu tekna í löndum heimsins. Ef ginistuðulinn er 0 eru allir jafnir en ef hann er 100 á einhver einn allt. Ekki skrá öll ríki heimsins ginistuðul en ginistuðlar ná frá 24.2 upp í 63.0. Sláðu inn gini í leitagluggan en athugaðu að ekki er til samræmd skráning fyrir allan heiminn. Fyrir neðan myndina getur þú séð öll lönd sem hafa skráð gini frá árinu 2003. Til að flokka lönd eftir gini smellir þú á most recent value fyrir neðan myndina. Til að flokka lönd eftir stafrófsröð smellir þú á country. Til að skoða þróun hvers lands skrifar þú nafn landsins í leitargluggan efst á síðunni.
1. Hvaða land hefur lægstan ginistuðul?
2. Hvað einkennir þau fimm lönd sem hafa lægsta ginistuðul landfræðilega?
3. Hvaða land hefur hæstan ginistuðul?
4. Í hvaða sæti er Ísland yfir lágan ginistuðul (lægst=1)?
5. Hvernig hefur ginistuðulinn á Íslandi þróast frá árinu 2003?
6. Hvernig kann hrunið árið 2008 að hafa haft áhrif á þróun ginistuðulsins á Íslandi?