Grunnur að skilningi á samfélaginu: Myndbandagreining (gervigreind)
Completion requirements
Verkefni: Georg Bjarnfreðarson og stéttarbarátta – sjálfstæð hugsun og gervigreindarstuðningur
Í þessu verkefni skoðarðu samskipti tveggja persóna úr íslenskri menningu út frá félagsfræðilegum kenningum. Þú átt að svara fimm spurningum í þremur skrefum:
- Þín eigin svör
- Aðstoð frá gervigreind
- Samanburður og endanleg niðurstaða
Leiðbeiningar fyrir hvern lið
Fyrst skrifar þú svar við spurningunni (1–5 setningar).
Síðan spyrðu gervigreind sömu spurningu.
Að lokum berðu saman svörin og skrifar þína eigin heildarniðurstöðu.
Spurningar (vinnsla í þremur skrefum hver):
- Lýstu samskiptum Ólafs Ragnars og Georgs Bjarnfreðarsonar í atriðinu um skrúðgöngu og kröfugöngu.
- Hvað er átt við með því „gáfulegasta“ sem kom út úr munni Georgs Bjarnfreðarsonar?
- Undir hvaða félagsfræðikenningu falla þessi orð Georgs – og hvers vegna?
- Hvernig tengjast þessi orð hugmyndum Karls Marx um stéttarbaráttu og samfélag?
- Hvað finnst þér um það sem Georg segir? Ertu sammála honum – og hvers vegna eða hvers vegna ekki?
Ígrundun í lokin
Hvernig hjálpaði gervigreindin þér við að hugsa dýpra um þetta efni?
Hvaða svör voru þín eigin og hvar fannst þér AI bæta við áhugaverðu sjónarhorni?