Grunnur að skilningi á samfélaginu: Rökræður (gervigreind)
Verkefni: Getuskipting og félagsfræðikenningar – sjálfstæð hugsun og gervigreindarstuðningur
Í þessu verkefni áttu að skrifa rökræðu um getuskiptingu í skólakerfinu. Þú átt að vinna verkefnið í þremur skrefum. Markmiðið er að temja sér gagnrýna hugsun og þjálfa sjálfstæða notkun gervigreindar til stuðnings, ekki í staðinn fyrir eigin vinnu.
Skref 1: Þín eigin ritun
Skrifaðu rökgreiningu sem inniheldur eftirfarandi fjóra hluta (150–250 orð í heild):
- Útskýrðu hvað getuskipting í skólum er (hraðferð, miðferð, hægferð).
- Rök með og á móti getuskiptingu.
- Þín eigin afstaða – hvor rökin finnst þér sterkari og hvers vegna?
- Hvort tengist afstaðan þín frekar samvirknikenningum eða átakakenningum? Útskýrðu tenginguna.
Skref 2: Aðstoð frá gervigreind
Spurðu gervigreind (t.d. ChatGPT):
„Hver eru rök með og á móti getuskiptingu í skólum út frá samvirknikenningum og átakakenningum?“
Skoðaðu hvernig AI útskýrir málið. Skráðu helstu atriði og hvort sjónarhorninu þú sért sammála.
Skref 3: Samanburður og heildarniðurstaða
Berðu saman það sem þú skrifaðir og hvað gervigreind lagði til.
Hvað var skýrara hjá þér? Hverju bætti AI við?
Skrifaðu að lokum samantektartexta (150–250 orð) sem byggir á bestu atriðum úr báðum nálgunum – með þinni afstöðu og skýrri tengingu við kenningar.
Ígrundun í lokin
Hvernig hjálpaði gervigreindin þér í þessu verkefni?
Hvaða hluta þurftir þú að hugsa og útskýra sjálfur?