Menning: Heimasíðugreining
Á heimasíðu Hagstofu Íslands er að finna mikið magn upplýsinga um margt sem viðkemur íslensku samfélagi. Ofarlega á síðunni má finna yfirflokka fyrir íbúa, samfélag, atvinnuvegi, efnahag og umhverfi. Í þessu verkefni ætlum við að skoða menningu. Þú smellir á samfélag (næst lengst til vinstri) og undir menning sérð þú sex flokka:
1. Hvernig hefur fjöldi einstaklinga sem eru utan trú- eða lífsskoðunarfélaga breyst frá 1999 til dagsins í dag? Hvað þýðir þessi þróun? Telur þú að trú skipti máli?
2. Hvernig hefur fjöldi leiksýninga breyst frá 1986 til dagsins í dag? Ferð þú í leikhús (hvers vegna/ekki)?
3. Hvernig hefur fjöldi safngesta breyst frá árinu 1995 til dagsins í dag? Hvað kann að skýra samdrátt árið 2020? Hvaða flokkar falla undir safngesti? Ferð þú á söfn? Hvers vegna /ekki?
4. Hvernig hefur fjöldi í rithöfundasambandi Íslands þróast frá 1980-2017? Hvernig hafa kynhlutföllin breyst?
5. Hve margir Íslendingar voru samtals starfandi við menningu árið 2021? Hvernig eru kynjahlutföllin? Hvaða ár voru fleiri karlar starfandi við mennigu en konur? Er mikilvægt að fólk starfi við menningu?