Menning: Ritun (gervigreind)
Completion requirements
Verkefni: Menning og fjölbreytni – með og án AI
1. Skref – Þín eigin texti
Skrifaðu texta (150–250 orð) um menningu og fjölbreytni. Þú mátt túlka efnið frjálst, en reyndu að:
- Útskýra hvað menning er
- Taka dæmi úr íslensku samfélagi eða öðrum hópum (t.d. Pólverjar, unglingar, Filipseyingar)
- Nefna dæmi um menningarkima (t.d. stuðningsmenn Chelsea, unglingamenning, rastamenn)
- Tengja við hugtök eins og menningahyggju, kynþáttahyggju, fordóma eða viðhorfsbreytingu
- Segja þína skoðun
Notaðu orð úr hugtakalistanum ef það hjálpar:
Menning, heilsurækt, gallabuxur, tæknivæðing, fjölbreytni, kynþættir, greindarpróf, lagasetning, baráttusamtök, Hitler, Milgram, Rúanda, Helförin, o.fl.
2. Skref – Ráðfærðu þig við AI
Þú mátt spyrja AI (t.d. ChatGPT):
- Hvernig er menning skilgreind í félagsfræði?
- Hvað eru menningarkimar?
- Hvernig birtast fordómar og kynþáttahyggja í samfélögum?
Berðu saman eigin texta og hugmyndir frá AI. Hafðu þó í huga að nota alltaf þín eigin orð í lokatextanum.
3. Skref – Lokatexti og frágangur
Skilaverkefnið er textinn í skrefi 1, uppsettur svona:
- 12 punkta letur
- 14 punkta fyrirsögn – miðjuð
- 1,5 línubil
- Texti jafnaður (Ctrl+J)
- Lengd: 150–250 orð