Kynhlutverk - ritgerðarkorn - má vera 2 saman
Verkefni: Eru kynhlutverk líffræðileg eða félagsleg?
Markmið: Markmiðið með verkefninu er að greina og meta á gagnrýninn hátt þau rök sem liggja að baki uppruna kynhlutverka, bæði út frá líffræðilegu og félagslegu sjónarhorni.
Fyrirmæli:
1. Skoðaðu bókina – kaflann um kynhlutverk, netið, gervigreind og önnur gögn sem þú finnur til að afla þér heimilda.
2. Hugleiddu á gagnrýninn hátt rök fyrir bæði líffræðilegum og félagslegum áhrifum á kynhlutverk. Hugleiddu hvernig þessir þættir spila saman og mögulega móta væntingar og hegðun samfélagsins sem tengist kyni.
3. Segðu skýrt frá afstöðu þinni til þess hvort þú telur að kynhlutverk séu fyrst og fremst undir áhrifum frá líffræði, samfélagi eða blöndu af hvoru tveggja.
4. Leggðu fram sönnunargögn og vísaðu í bókina til að styðja rökin sem þú setur fram.
5. Dragðu saman helstu atriði og ítrekaðu afstöðu þína til uppruna kynhlutverka.
6. Umhugsun: Veltu fyrir þér hvernig rannsóknir þínar og greiningar hafa haft áhrif á þinn eigin skilning á kynhlutverkum og uppruna þeirra
Verkefnið:
Lengd verkefnisins: Verkefnið á að vera ritgerð - um 600 til 800 orð – inngangur – meginmál – lokaorð – heimildaskrá.
12 punkta letur
jafna texta - justify
14 pkt fyrirsagnir
miðja fyrirsagnir - center
1.5 línubil
Líffræðilegar röksemdir með að kynhlutverkum sé stjórnað af erfðum
1. Sumar rannsóknir benda til þess að það sé munur á uppbyggingu og virkni heilans milli karla og kvenna
2. Kynþroski hefur áhrif á kynbundna hegðun
3. Allt frá veiðimönnum og söfnurum hafa kynin skipt með sér hlutverkum – karlar veiða – konur safna
4. Í mörgum dýrategundum er greinilegur hegðunar- og líkamlegur munur á körlum og konum
5. Konur ganga með börn
6. Líkamlegur munur á körlum og konum
7. Hormónamunur milli karla og kvenna
Félagslegar röksemdir með að kynhlutverkum sé stjórnað af umhverfinu
1. Aðgreining starfa í kvennastörf og karlastörf
2. Verkaskipting á heimilinu þar sem konur eiga að stjá um heimilisstörf:
3. Fatnaður og tíska sem er sérsniðin fyrir karla og konur
4. Framsetning fjölmiðla og kynhlutverkum og hvað sé einkennandi fyrir kynin
5. Félagsmótun barna
6. Væntingar um útlit og fegurðarstaðla
7. Tungumál og samskiptastíll – samfélagið leggur áherslu á hvernig tjáning eigi að vera ólík
8. Réttar- og stjórnmálakerfi tekur á ólíkan hátt á kynjunum. Konur eiga síður möguleika að ná áhrifum innan stjórnmála á meðan að tekið er harðar á körlum í réttarvörslukerfinu:
9. Væntingar um tilfinningatjáningu
- 16 December 2025, 2:35 PM