Kynhlutverk: Ritun (gervigreind)
Verkefni: Kynhlutverk – sjálfstæð hugsun og gervigreindarstuðningur
Þú átt að skrifa 150–200 orða texta um kynhlutverk. Til þess þarftu að hugsa sjálf(ur), nýta þekkingu og geta notað gervigreind til stuðnings. Markmiðið er að dýpka skilning þinn og þjálfa þig í að skrifa fræðilegan texta með þinni eigin rödd.
Þú mátt nota orð og hugtök eins og:
Kyn og kynhlutverk, Kyn, Kynhlutverk, Staðalmyndir, Mótun kynhlutverka, Kynbundið misrétti, Kynbundið ofbeldi, Karlmennska, Fræðileg umfjöllun og kenningar, Samvirknikenningar og kynhlutverk, Átakakenningar og kynhlutverk, Samskiptakenningar og kynhlutverk, Helstu fræðimenn og brautryðjendur, Talcott Parsons, Karl Marx, Friedrich Engels, Mary Wollstonecraft, Bríet Bjarnhéðinsdóttir, John Stuart Mill, Margaret Mead, Rannsóknir og dæmisögur, David Reimer, Intersex, Casta Semenya, Fegurðarímyndin, Auglýsingar og samfélagsmiðlar, Auglýsingar og kynhlutverk, Kynímyndir í auglýsingum, Samfélagsmiðlar og kynhlutverk, Félagsleg og menningarleg áhrif, Feðraveldi, Persónulegt feðraveldi, Opinbert feðraveldi, Stofnanabundin kynhyggja, Ofbeldi gegn konum, Heimilisstörf og kynjaskipting, Réttindi – jafnrétti og þróun, Aðgerðaáætlun ríkisstjórnarinnar, Kosningaréttur kvenna, Hugmyndir um framtíð kynhlutverk
Skref 1: Þinn eigin texti
Skrifaðu sjálf(ur) 150–200 orða texta um kynhlutverk. Þú getur byggt á bókinni, dæmum, rannsóknum eða eigin skoðunum, svo lengi sem þær eru útskýrðar.
Skref 2: Aðstoð frá gervigreind
Spurðu gervigreind (t.d. ChatGPT):
„Geturðu skrifað 150–200 orða fræðilegan texta um kynhlutverk í samfélaginu?“
Lestu yfir svarið og taktu niður það sem þér finnst gagnlegt. Ekki afrita beint – heldur notaðu það sem stuðning.
Skref 3: Samanburður og heildarniðurstaða
Berðu saman þinn eigin texta og hugmyndir AI.
Skrifaðu síðan nýjan texta í eigin orðum þar sem þú sameinar það sem þú lærðir sjálfur og það sem gervigreind bætti við. Lokatextinn á að vera 150–200 orð.
Ígrundun í lokin
Hvernig hjálpaði gervigreind þér í þessu verkefni?
Hvaða hluta skrifaðir þú alfarið og af hverju?