Kvikmyndarýni: Enough
Greining kynhlutverka, heimilisofbeldis og valdeflingar í kvikmyndinn "Enough"
Markmið: Að meta hvernig kvikmyndin "Enough" fjallar um kynhlutverk, heimilisofbeldi og valdeflingu kvenna. Til að fá einkunn fyrir hvern lið þarftu að vísa í nákvæmt atriði úr myndinni og túlka með eigin orðum.
Fyrirmæli:
1. Inngangur (1 málsgrein)
Fjallaðu stuttlega um myndina "Enough" þar sem gerð er grein fyrir helstu persónum og aðalatriðum myndarinnar.
Tilgreinið tilgang verkefnisins: að skoða kynhlutverk, heimilisofbeldi og valdeflingu kvenna í myndinni og hvers vegna það skiptir máli.
2. Kynhlutverk
Greindu lýsingu á kynhlutverkum í myndinni og virkni þeirra eins og fjallað hefur verið um virkni innan samvirknikenninga. Hvernig kemur neikvæð virkni eða skaðvirkni fram? Nefndu nákvæm dæmi eins og t.d. more than enough.
3. Heimilisofbeldi
Ræddu lykilatriði sem sýna heimilisofbeldi og áhrif þess á fórnarlambið, fjölskylduna og aðra tengda aðila! Taktu nákvæm dæmi eins og þau birtast í myndinni.
4. Valdefling kvenna
Skoðaðu hvernig aðalpersónan, Slim, bregst við heimilisofbeldi og tekur stjórn á lífi sínu. Leggðu áherslu á aðferðir hennar og hvernig hún sækir sér stuðning til valdeflingar. Taktu nákvæm dæmi úr myndinni sem sýna hvers vegna hún þarf að grípa til þeirra aðgerða sem hún gerir með vísan í viðbrögð lögreglu og réttarkerfisins. Mat á réttarkerfinu kemur meðal annars fram þegar hún leitar til lögfræðings til að undirbúa forsjármálið í dómstólum..
5. Valdeflandi aðgerðir
Ræðið til hvaða aðgerða einstaklingar, löggjafinn, réttarvörslukerfið, hópar og samfélög geta gripið til í því skyni að styðja þolendur, hjálpa gerendum og stuðla að jafnrétti kynjanna. Taktu nákvæm dæmi um hvað Slim gerir til að takast á við ástandið og lýsir valdeflingu kvenna.
6. Niðurstaða
Fjallaðu um hvers vegna þetta verkefni sé mikilvægt og fjallaðu um hvort kvikmyndin hafi haft áhrif á þín viðhorf.
https://heimilisfridur.is/2-um-heimilisfrid/