Félagssálfræði - hugtök og gervigreind
Verkefni: Félagsleg áhrif og hegðun – Hlutverk hópa, viðhorfa og samskipta
Hugtök í verkefninu:
Félagsleg áhrif og hegðun
Fylgispekt · Hlýðni · Hópþrýstingur · Hóphugsun
Fordómar og hópamyndun
Fordómar · Viðhorf · Staðalmyndir · Kenningin um hópsjálf · Hópaskipting
Félagsskilningur og sjálfsmynd
Félagsskilningur · Sjálfsmynd · Hugrænt misræmi
Samskipti og sambönd
Samskipti · Sambönd · Kenning um afskiptaleysi · Afskiptaleysi viðstaddra
1. Sjálfstæð vinna (án AI):
Veldu 5 hugtök úr listanum að ofan. Útskýrðu þau í stuttu máli (10–30 orð hvert) með eigin orðum.
Skrifaðu síðan stuttan texta (100–150 orð) þar sem þú notar a.m.k. þrjú af hugtökunum til að lýsa félagslegu atviki sem þú hefur séð, upplifað eða heyrt um (t.d. í bíómynd, fréttum eða skóla).
2. Aðstoð með gervigreind:
Biddu ChatGPT (eða aðra gervigreind) um að útskýra sömu fimm hugtök og bera saman við þínar skilgreiningar. Láttu AI líka hjálpa þér að bæta lýsingu á atvikinu með því að spyrja:
„Hvernig má útskýra þetta atvik með hugtökum úr félagssálfræði? Geturðu bætt röksemdafærsluna og tengt fleiri kenningar?“
3. Samanburður og heildarniðurstaða:
Skrifaðu stuttan samanburð (100–150 orð):
- Hvað var gott við þínar eigin útskýringar og greiningu?
- Hverju bætti gervigreindin við?
- Hvernig hjálpaði þessi samanburður þér að skilja efnið betur?