Heimilisofbeldi: Heimasíðugreining
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu og Reykjavíkurborg hafa tekið saman tölulegar upplýsingar um útköll/tilkynningar vegna heimilisofbeldis í Reykjavík. Upplýsingarnar ná frá upphafi verkefnisins Saman gegn ofbeldi. Á vefsvæði Reykjavíkurborgar má sjá tölulegar upplýsingar um útköll vegna heimilisofbeldis eftir árum. Lestu nýjustu skýrsluna og svaraðu eftirfarandi spurningum:
1. Á hvaða vikudögum er algengast að lögreglan fari í útköll vegna heimilisofbeldis?
2. Hvers vegna telur þú að dreifingin sé svona?
3. Á hvaða tímum sólahrings er algengast að tilkynnt sé um heimilisofbeldi?
4. Hvers vegna telur þú að dreifingin sé svona?
5. Hvaða aðili er líklegastur til að beita heimilisofbeldi?
6-8. Hvað telur þú að gerendur og þolendur geti gert til að draga úr heimilisofbeldi? http://heimilisfridur.is/ https://www.bjarkarhlid.is/
9.-12: Finndu eftirfarandi töflu og settu hana upp í excel - skífurit þar sem hlutfall á milli karla og kvenna er birt.
Tafla 1. Fjöldi útkalla/tilkynninga 2024 eftir kyni brotaþola