Heimilisofbeldi: Ritun (gervigreind)
Verkefni: Afbrot innan fjölskyldunnar
Markmið
Nemendur skrifa stutta efnisgrein (150–200 orð) um afbrot innan fjölskyldunnar. Þeir eiga fyrst að móta eigin skilning og texta, fá síðan aðstoð frá gervigreind og að lokum bera saman vinnu sína og innsýn frá AI. Þannig læra þeir að beita ritfærni, nota hugtök og greina hvernig gervigreind getur styrkt – eða brenglað – niðurstöðuna.
Þriggja skrefa verkefni
1. Sjálfstæð vinna (án gervigreindar)
Skrifaðu efnisgrein (150–200 orð) þar sem þú fjallar um afbrot innan fjölskyldunnar. Þú átt að útskýra hvað felst í heimilisofbeldi, hverjir eru þolendur og gerendur, hvaða áhrif það hefur á fjölskyldumeðlimi og hvernig samfélagið bregst við.
Reyndu að nota sem nokkur af eftirfarandi hugtökum í textanum (án þess að telja þau upp):
Morð, hlutfall, Ísland, Bandaríkin, fjölgun, 55%, 36%, Drekaslóð, samtök, þolendur, ofbeldi, einangrun, hótanir, stjórnun, kúgun, misnotkun, barnið, sérfræðingur, blórabögull, vanlíðan, óöryggi, vanræksla, skilgreiningar, lögverndun, ofbeldismaður, ex parte order, sönnunargögn, dómstólar, lagabreytingar, fækkun, 6, stórfellt, 16, 2015, formleg, afskipti, hræðsla, reiði, skynsamlegt, val, hringrás, Steiner, yfirgefa, ótti.
Ekki þarf að nota öll orðin, en reyndu að flétta þau náttúrulega inn í textann.
2. Aðstoð með gervigreind
Eftir að þú hefur skrifað eigin efnisgrein skaltu biðja gervigreind um aðstoð. Þú getur beðið hana um eitt eða fleira af eftirfarandi:
- „Geturðu hjálpað mér að skrifa efnisgrein um afbrot innan fjölskyldunnar?“
- „Hvernig get ég bætt ritgerðina mína?“
- „Vantar mig fleiri hugtök eða samhengi?“
- „Hvernig væri að útskýra hugtakið ‘ex parte order’ í samhengi við heimilisofbeldi?“
Mundu: Ekki afrita textann beint frá gervigreind. Notaðu hann sem innblástur eða til að skoða hvernig hægt er að orða hluti öðruvísi, bæta samhengi eða finna nýjar tengingar.
3. Samanburður og niðurstaða
Skrifaðu stutt lokaorð (50–80 orð) þar sem þú:
- Berð saman þína eigin efnisgrein og hugmyndirnar sem komu frá gervigreind.
- Segir hvað var gagnlegt og hvað þú myndir varast.
- Metur hvort og hvernig AI hjálpaði þér að dýpka eða betrumbæta textann þinn.
Niðurstaðan á að vera skrifuð í þínum eigin orðum og endurspegla þína afstöðu til efnisins og aðferðarinnar.