Stjórnmál - myndbanda/heimasíðugreining - Æði
Til að vinna þetta verkefni þarft þú að horfa á þetta myndband þar sem Stefán Pálsson sagnfræðingur fer yfir stjórnmálasviðið með strákunum úr Æði! Þá þarft þú einnig að fara inn á þessa síðuog skoða úrslit kosninganna sem og að rýna í fjölda karla og kvenna sem sitja á Alþingi frá árinu 1900.
Hægri - frjálshyggja - kapítalismi: Þeir sem hallast til hægri vilja lága skatta - lítil ríkisafskipti og einkarekstur frekar en ríkisrekstur. Hægri menn telja oftast að rétt sé að mismuna einstaklingum eftir hæfileikum og dugnaði - bætur eigi að vera lágar og sem mest eigi að koma í vasa hvers og eins.
Vinstri - Félagshyggja - sósíalismi: Þeir sem hallast til vinstri vilja að skattar séu háir - ríkið eigi að skipa stóran sess í samfélaginu. Ekki eigi að mismuna einstaklingum eftir hæfileikum eða afköstum - velferðarbætur eigi að vera háar og jöfnuður sé mikill.
Attempts allowed: 1