Stjórnmál: Ritun 1 (gervigreind)
Hvað eru stjórnmál?
Verkefni í þremur skrefum – þú mátt nota gervigreind til að fá hjálp, en verður að vinna úr efninu sjálf/ur.
Skref 1 – Útskýrðu efnið
Notaðu gervigreind til að fá einfaldar útskýringar á hugtakinu „stjórnmál“. Hvað merkir hugtakið? Hverjir taka þátt í stjórnmálum? Hver er munurinn á lýðræði og einræði?
Skrifaðu 3–5 setningar með þínum eigin orðum.
Þú mátt nefna dæmi um stjórnmálaflokka, stjórnkerfi eða vald.
Skref 2 – Finndu og túlkaðu
Leitaðu með hjálp gervigreindar að dæmum um íslenska stjórnmálaflokka. Hverjir eru helstir? Hvað vilja þeir?
Veldu 2 flokka og segðu í stuttu máli hvað þeir vilja.
Lýstu hvort þú værir líkleg/ur til að kjósa annan þeirra – og hvers vegna.
Skref 3 – Segðu þína skoðun
Hvernig upplifir þú stjórnmál? Treystir þú stjórnmálafólki? Eru stjórnmál mikilvæg?
Skrifaðu 5–7 setningar með þínum eigin orðum.
Reyndu að tengja við hugtök eins og lýðræði, vald eða kosningar.