Kenningar og rannsóknir: Heimasíðugreining (gervigreind)
Completion requirements
Verkefni: Íbúar og samfélag – sögulegar hagtölur og gagnrýnin greining
Farðu inn á https://sogulegar.hagstofa.is
Skref 1 – Sjálfstæð vinna (án AI)
Skoðaðu vefinn sjálfur og svaraðu með þínum orðum:
- Hvernig hefur fæðingartíðni (lifandi börn á ævi hverrar konu) þróast frá 1853 til 2020?
- Hverjar gætu afleiðingarnar orðið ef þessi þróun heldur áfram?
- Hvernig hefur útbreiðsla dagblaða breyst frá 1906 til 2010?
- Hvað gæti haft áhrif á þessa þróun?
- Hvernig heldur þú að þróunin hafi verið eftir 2010?
- Hvernig hefur hlutfall brautskráðra stúdenta eftir kyni þróast frá 1847 til 2023?
- Hvað gæti hafa haft áhrif á þá þróun (t.d. staða kvenna)?
- Hvernig þróaðist skráð atvinnuleysi 1957–2015?
- Hvernig heldur þú að atvinnuleysi hafi þróast síðan 2015?
- Hvernig fannst þér vefurinn – auðvelt að vinna úr? Hvað lærðir þú af greiningunni?
Skref 2 – Aðstoð með gervigreind
Nú færðu aðstoð frá ChatGPT (eða öðrum gervigreindarforritum) og biður um að fá:
- útskýringar á þróun fæðingartíðni og áhrifum hennar
- samhengi dagblaðaútgáfu og tæknibreytinga
- greiningar á þróun jafnréttis í menntun
- yfirsýn yfir atvinnuleysi á Íslandi eftir 2015
ATH: Þú mátt ekki afrita texta beint – skrifaðu þína eigin túlkun!
Skref 3 – Samanburður og samantekt
Skrifaðu stutta samantekt þar sem þú:
- Berð saman eigin svör og innsýn AI
- Metur hvar AI bætti við – og hvar eigin greining var sterkari
- Lýsir því hvað þú lærðir af gagnrýninni notkun á gervigreind
Markmið verkefnisins
- Að læra að vinna með opinber gögn
- Að efla gagnrýna hugsun og greiningarfærni
- Að nýta gervigreind sem stuðning, en byggja eigin niðurstöðu