Gervigreind, gögn og gagnrýnin hugsun
Completion requirements
Verkefni: Gervigreind, gögn og gagnrýnin hugsun
Leiðbeiningar:
Farðu inn á vefinn Our World in Data – Artificial Intelligence. Veldu tvær myndir eða gagnasöfn og svaraðu spurningum hér að neðan. Svaraðu liðum eitt til fjögur í word.
1. Lýsing gagna
- Hvaða tvær myndir valdir þú?
- Hver safnaði gögnunum og við hvaða tímabil eiga gögnin?
2. Túlkun
- Hverjar eru helstu niðurstöður á hvorri mynd?
- Eru niðurstöðurnar líklegar til að hafa áhrif á samfélagið í framtíðinni?
3. Gagnrýnin hugsun (hérna má spyrja gervigreind)
- Vantar eitthvað í gögnin til að hægt sé að draga áreiðanlegar ályktanir?
- Getur myndin verið túlkuð á fleiri en einn hátt?
- Hvernig gæti fjölmiðill notað gögnin til að ýta undir ákveðna skoðun?
4. Samfélagsleg áhrif
- Hvernig tengjast niðurstöðurnar umræðu um daglegt líf, vinnumarkað, menntun eða samskipti fólks?
- Hvaða jákvæðu og neikvæðu afleiðingar gætu tengst þróuninni?
5. Lokaverkefni – kynning fyrir aðra
Ljúktu verkefninu með að búa til kynningu sem þú deilir með bekknum:
- Kahoot (8–10 spurningar) byggt á þínum niðurstöðum og hugtökum úr kaflanum.
- eða PowerPoint kynningu (5–7 glærur) þar sem þú sýnir myndirnar, túlkun og samfélagsleg áhrif.
Markmið verkefnisins
- Þjálfa gagnalæsi með því að lesa og bera saman tvö gagnasöfn.
- Þjálfa gagnrýna hugsun með því að spyrja hvað gögn sýna og hvað þau sýna ekki.
- Auka skapandi tjáningu með því að setja niðurstöður fram sem leik eða kynningu fyrir bekkinn.