1. Heimildagreining: Stafræna byltingin (gervigreind)
Heimildagreining með stuðningi gervigreindar
Markmið: Að þjálfa nemendur í að greina heimildir sjálfstætt, nýta gervigreind sem rýnisverkfæri og skrifa vandaða eigin samantekt.
1. Sjálfstæð vinna (án AI)
Veldu eina heimild úr kaflanum og svaraðu eftirfarandi spurningum út frá eigin lestri og skilningi:
- Hvaða tegund heimildar er um að ræða (t.d. bók, tímarit, vefsvæði, skýrsla)?
- Hver er titill heimildarinnar?
- Hver er höfundur?
- Hvenær var heimildin gefin út?
- Um hvað fjallar heimildin? (50–100 orð)
- Vísar höfundur í aðrar heimildir? Ef svo er, hversu margar?
- Telur þú að þetta sé góð heimild? Af hverju / af hverju ekki?
2. Aðstoð með gervigreind
Opnaðu gervigreindarforrit (t.d. ChatGPT) og spyrðu:
„Geturðu hjálpað mér að greina heimildina [titill] eftir [höfund] og segja mér hvort hún sé áreiðanleg og góð heimild?“
Einnig má spyrja:
„Hvernig getur maður metið hvort heimild sé góð eða slæm?“
Lestu yfir svörin og berðu saman við eigin greiningu.
3. Samanburður og heildarniðurstaða
Skrifaðu stutta samantekt (100 orð) þar sem þú svarar:
- Hvernig hjálpaði gervigreindin þér að skoða heimildina betur?
- Breyttist mat þitt á heimildinni? Af hverju?
- Hvað lærðir þú um heimildagreiningu og gagnrýna hugsun?
Athugasemd: Nemendur mega ekki afrita beint úr AI. Þeir verða að skrifa eigin orð í lokaafurðina.