Kenningar og kynjamisrétti: Rökræður
Eru kynhlutverk líffræðileg eða félagsleg?
Skrifaðu rökræður (100-300 orð) með eða á móti annari hvorri nálguninni.
1. Notaðu öll þau gögn sem passa við þína nálgun og þú getur fundið í kaflanum eða á netinu.
2. Vertu rökvís og ákveðin án þess að vera dónalegur.
Leiðbeiningar fyrir ritun rökræðna
1. Taktu afstöðu til efnisins, með eða á móti.
2. Byrjaðu á því að segja eitthvað áhugavert eða skemmtilegt sem getur dregið athyglina að því sem þú ert að fjalla um.
3. Notaðu fræðileg rök til að rökstyðja það sem þú segir.
4. Vitnaðu í bókina, rannsóknir eða annað efni sem þú finnur á netinu.
5. Vertu ákveðin en skynsamur.
6. Vertu harður á þínum rökum.
7. Taktu fyrir almenn mótrök sem þú getur bent á að séu gölluð eða þú getur hrakið
8. Ekki niðurlægja þá afstöðu sem þið gangið gegn heldur verið rökvís og notið gögn.
9. Er orðalag og málfar vandað.
10. Er það sem þið fjallið um skýrt.
- 16 December 2025, 2:35 PM