Kenningar og kynjamisrétti: Ritun (gervigreind)
Verkefni: Feminískar kenningar og jafnrétti kynjanna – sjálfstæð hugsun og gervigreindarstuðningur
Í þessu verkefni átt þú að skrifa stuttan fræðilegan texta um feminískar kenningar og jafnrétti kynjanna. Þú notar þína eigin þekkingu og reynslu í fyrsta skrefi og gervigreind sem stuðning í öðru skrefi. Í lokin skrifar þú endanlega útgáfu byggða á bæði eigin vinnu og því sem þú lærðir frá gervigreind.
Lengd: 150–200 orð
Þú mátt nota orð og hugtök eins og:
Samvirknikenningar, Samskiptakenningar, Átakakenningar, Kynjamótunarkenningar, Hommafælnikenningar, Félagslegar formgerðir, Femínismi, Frjálslyndur femínismi, Róttækur femínismi, Fjölmenningalegur femínismi, Feðraveldi, Kynbundið ofbeldi, Kynferðislegt ofbeldi, Kynbundinn launamunur, Skaðvirkni, MeToo-byltingin, Vitundarvakning, DaddyToo, Femínistaskjölin.
Skref 1: Þinn eigin texti
Skrifaðu 150–200 orð þar sem þú útskýrir feminískar kenningar, mismunandi birtingarmyndir þeirra og hvernig þær tengjast baráttunni fyrir jafnrétti kynjanna.
Skref 2: Aðstoð frá gervigreind
Spurðu t.d. ChatGPT:
„Geturðu skrifað 150–200 orða texta um feminískar kenningar og jafnrétti kynjanna?“
Lestu yfir svarið. Skráðu það sem þér fannst gagnlegt eða áhugavert – en ekki afrita beint.
Skref 3: Samanburður og heildarniðurstaða
Berðu saman þinn eigin texta og það sem gervigreind lagði til.
Skrifaðu lokatexta með þínum eigin orðum, þar sem þú sameinar styrkleika beggja aðferða. Lokatextinn á að vera 150–200 orð og vel upp settur.
Ígrundun í lokin
Hvað bætti gervigreindin við sem þú hafðir ekki hugsað áður?
Hvaða hluti þurftir þú sjálfur að útskýra eða móta?