Fræðimenn - kenningar og gervigreind
Veldu fjóra fræðimenn sem komu fyrir í kaflanum.
1. Hvaða fræðimenn valdir þú?
2. Hvers vegna valdir þú þessa fræðimenn – rökstuðningur?
3. Farðu inn á forritið bing-chat í gegnum microsof edge vafrann. Nú biður þú forritið um að teikna mynd af hverjum fræðimanni. Þú færð fjórar myndir og velur þá mynd sem þér finnst best eða líkust fræðimanninum. Birtu myndirnar.
4. Hvaða mynd fannst þér best? Hvers vegna – rökstuðningur.
5. Hugmynd hvaða fræðimanns finnst þér vera best eða ert þú mest sammála? Hvers vegna?
6. Hugmynd hvaða fræðimanns finnst þér vera verst eða ert þú mest ósammála? Hvers vegna?
7. Nefndu tvö dæmi sem koma fram í kenningum eða hugmyndum fræðimannanna og tengdu við þitt persónulega líf.