Grunnur að skilningi á samfélaginu: Heimasíðugreining
Alþjóðabankinn er meðal stærstu og áhrifamestu alþjóðastofnana á sviði þróunarsamvinnu í heiminum. Hlutverk bankans er að stuðla að efnahagslegri og félagslegri uppbyggingu þróunarlanda. Bankinn starfar með stjórnvöldum hlutaðeigandi ríkja og veitir þeim aðstoð í formi lána, styrkja og ráðgjafar. Ísland á víðtækt samráð við Norðurlöndin og Eystrasaltsríkin um stefnumótun innan Alþjóðabankans en þessi lönd mynda eitt kjördæmi bankans. Á opinberu vefsvæði bankans er að finna tölfræði upplýsingar um fjölmarga þætti sem tengjast þjóðum heimsins. Í þessu verkefni ætlum við að skoða gagnabanka Alþjóðabankans. Farðu inn á vefsvæðið https://data.worldbank.org/. Á miðri síðunni er leitargluggi þar sem þú getur slegið inn þær upplýsingar sem þú vilt fá. Við ætlum að skoða fátækt í heiminum. Sláðu inn poverty og þá geturðu valið nokkra mismunandi valmöguleika. Með því að fara niður sérð þú Poverty gap at $5.50 a day og smellir á það. Nú birtist graf sem sýnir punkta yfir hlutfall fátæktar fyrir ríki heimsins frá árinu 1981. Athugaðu að ekki berast tölur frá öllum löndum og sérstaklega vantar upp á tölur frá vanþróuðum fátækum löndum. Til að flokka lönd eftir hlutfalli einstaklinga sem eiga minna en 5.5 dollara á dag smellir þú á most recent value fyrir neðan myndina.Til að flokka lönd eftir stafrófsröð smellir þú á country. Til að skoða þróun hvers lands smellir þú á landið og þá birtist þróun þeirra ára sem hafa verið skráð frá árinu 1981.
1. Hvernig hefur fátækt í heiminum þróast frá árinu 1981??
2. Hvers vegna skiptir máli við samanburð á fátækt á milli ára að dollarinn sé á föstu verðlagi?
3. Hvers vegna er grafið á myndinni gallað og lætur líta út fyrir að fátækt hafi minnkað meira en hún gerir í raun og veru?
4. Í hvaða tveimur löndum er hæst hlutfall sárafátækra?
5. Hvernig hefur þróun fátæktar verið í Malawi?
6. Hvernig hefur þróun fátæktar verið á Kólumbíu?
7. Hvað geturðu sagt mér um Malawi?
8. Hvað geturðu sagt mér um Kólumbíu?