Réttarvörslukerfið: Heimasíðugreining
Tilgangur með rekstri fangelsa er að fullnusta refsinga fari fram með öruggum og skilvirkum hætti þannig að réttaröryggi almennings sé tryggt og tilætluð sérstök og almenn varnaðaráhrif fangelsisvistarinnar séu virt. Það er þjóðfélagslega hagkvæmt að draga úr endurkomutíðni svo og hagkvæmt fyrir hinn dæmda og fjölskyldu hans. Mikilvægt er því að draga úr ítrekun brota með því að stuðla að farsælli aðlögun dómþola að samfélaginu. Á vefsvæði fangelsismálastofnunnar https://www.fangelsi.is/ er að finna upplýsingar um íslensk fangelsi og afplánunarferli fanga. Í þessu verkefni ætlum við að skoða Íslensk fangelsi.
1. Hve mörg fangelsi eru með starfsemi á Íslandi?
2. Hver af þeim fangelsum sem eru með starfsemi eru opin og hver eru lokuð?
3. Hver er munurinn á opnu og lokuðu fangelsi?
4. Hvort úrræðið finnst þér betra? Hvers vegna?
5-7. Segðu frá Fangelsinu á Hólmsheiði. Hvar er það staðsett (nákvæmlega)? Hvað er pláss fyrir marga fanga? Hvernig er aðstaðan? Hvaða tækifæri eru til betrunar í fangelsinu?
8-10. Ef þú myndir sitja í fangelsi á Íslandi hvaða fangelsi myndir þú velja? Hvers vegna?