Gervigreind og samfélagið - rökræður - hópavinna
Completion requirements
Rökræðuverkefni: Gervigreind – bylting eða ógn?
Markmið
Nemendur rýna í áhrif gervigreindar á samfélag, menntun, vinnu og samskipti og taka afstöðu með eða á móti ákveðnum fullyrðingum. Þeir þurfa að rökstyðja vel, hlusta á andstæð sjónarmið og nýta dæmi úr texta.
Verkefnislýsing
- Veldu eina af eftirfarandi rökræðufullyrðingum.
- Veldu þér stöðu: Ertu með eða á móti fullyrðingunni?
- Undirbúðu rök með því að:
- Finna staðreyndir og dæmi úr bókinni eða af vefnum
- Nota hugtök eins og reiknirit, sjálfvirknivæðing, djúpfölsun, tæknilæsi
- Íhuga afleiðingar fyrir einstaklinga, samfélag og framtíðina
- Undirbúðu 1–2 mótrök sem þú gætir fengið og hvernig þú myndir svara þeim.
- Skrifið stutta samantekt að lokum (5–10 línur) þar sem þú ígrundar:
Breyttist afstaða þín?
Hvað lærðir þú af andstæðu sjónarmiði? - Kynnið fyrir bekknum
Fullyrðingar til rökræðu (veldu eina)
- „Gervigreind bætir samskipti og tengsl milli fólks.“
- „Við eigum að treysta gervigreind til að velja efni fyrir okkur á samfélagsmiðlum.“
- „Sköpun sem byggir á AI er raunveruleg list – og ætti að njóta sömu virðingar og mannleg list.“
- „Nemendur ættu að mega nota gervigreind frjálst í námi án takmarkana.“
- „AI mun gera flesta kennara óþarfa innan 20 ára.“
- „Við verðum að hafa strangar reglur um notkun gervigreindar í fjölmiðlum og stjórnmálum.“
- „Sjálfvirknivæðing með AI mun bæta lífsgæði fólks frekar en að ógna störfum.“
- „Það er siðferðislega rangt að nota AI til að búa til myndir sem byggja á verkum annarra listamanna án leyfis.“