Sjúkdómsvæðing og samfélag: Greining frávika
Í þessu verkefni vinnið þið í hóp. Veldu tvö af eftirfarandi frávikum og ræðið ykkar á milli þangað til að þið komist að niðurstöðu:
1. Fíkniefnaneysla - fíkniefnabrot
2. Ofvirkni meðal barna eða fullorðinna
3. Trans - Kynleiðréttingar
4. Kynferðisleg misnotkun á börnum - barnaníð
5. Netglæpir - kynferðisleg áreitni á netinu
6. Klám, vændi (sexual deviance)
7. Geðræn vandkvæði
8. Sjálfsvíg (suicide)
9. Ástsýki (erotomania)
1. Hvernig viljið þið skilgreina frávikið? Er frávikið sjúkdómur, afbrot, syndsamlegt, fullkomlega eðlilegt eða eitthvað annað? Hvaða ástæður kunna að vera að baki því að frávikið er til staðar í samfélaginu? (40-150 orð og rökstyðja)
2. Taktu dæmi um hvernig hugtakið birtist í daglegu lífi?
Þungunnarrof
Þungunarrof er ekki frávik á Íslandi nema eftir 22 viku. Þetta á við um íslensk lög en misjafnt er hvernig löggjöf um þungunarrof er á milli landa og heimsálfa. Þungunarrof er því aðeins frávik ef um er að ræða þungun eftir 22 viku. Þó má líta á ítrekuð þungunarrof sem frávik enda er markmiðið ekki að slíkt inngrip sé hugsað sem vörn gegn barneignum heldur neyðarúrræði. Þungunarrof getur því verið afbrot, frávik eða fullkomlega nauðsynleg ráðstöfun eftir stað og stund.
Stúlkur og konur sem verða óléttar en hafa ekki félagslegar aðstæður, heilsu eða aðrir þættir sem koma í veg fyrir að konan treystir sér til þess að ganga með barnið.
Alkóhólismi
Alkóhólismi er áfengissýki þar sem einstaklingur misnotar áfengi á þann hátt að það hefur skaðleg áhrif á hans líf og eða líf annara.
Upphaflega er frávikið ekki sjúkdómur þar sem einstaklingur getur tekið þá ákvörðun að nota efnið eða ekki. Þegar notkunin fer að ágerast og einstaklingar fara að verða háðir efninu líkamlega getur það komist á sjúkdómsstig, jafnvel svo alvarlegt að einstaklingur getur ekki lifað án þess.
Á Íslandi er áfengi mjög inngrafið í menninguna og mikið er um áfengissýki. Áfengi var eitt sinn bannað á Íslandi og bjór til ársins 1989. Karlar eru líklegri til að þróa sjúkdóminn en konur.