Verkefni 1 – Hver stal milljónum án þess að brjóta glugga?
Completion requirements
Verkefni 1 – Hver stal milljónum án þess að brjóta glugga?
Markmið: Nemendur læra hvað hvítflibbaafbrot eru og skilja muninn á þeim og hefðbundnum afbrotum eins og innbrotum eða þjófnaði.
Dæmi:
„Maður í jakkafötum vinnur hjá banka og svindlar á tölvukerfi bankans þannig að hann fær gridda peninga inn á sinn reikning sem hann hefur ekki rétt á. Enginn verður fyrir líkamsmeiðslum. Enginn gluggi brotinn. En bankinn tapar milljónum.“
Umræða í bekk:
- Er þetta glæpur?
- Hvernig er þetta öðruvísi en t.d. innbrot í hús?
- Hvaða hugtak lýsir svona broti?
Hugtök sem tengjast:
Hvítflibbaafbrot - Fjárdráttur – Fjársvik – Þjófnaður – Efnahagsleg áhrif
Verkefnaskil:
Nemendur skrifa 1-2 setningar um:
„Af hverju eru hvítflibbaafbrot stundum erfiðara að eiga við eða skilja en hefðbundið þjófnaðarbrot?“