Verkefni 3 – Stafræna hættuspilið (spurningaspil eða hóparökræða)
Completion requirements
Verkefni 3 – Stafræna hættuspilið (spurningaspil eða hóparökræða)
Markmið: Að ræða bæði jákvæða og neikvæða þætti stafrænnar þróunar.
Hugtök: Stafræn bylting – Stafrænt ofbeldi – Hrelliklám – Skuggahliðar stafrænu byltingarinnar – Netmiðlar – Efnisveitur – Slaufunarmenning – Gerendameðvirkni
Leiðbeiningar:
- Kennari les upp senur og nemendur svara með lit/spjaldi eða í umræðu:
- Dæmi: „Ein manneskja deilir mynd af annarri án leyfis – er þetta stafrænt ofbeldi?“
- „Fræg manneskja segir eitthvað eða gerir eitthvað sem telst óviðeigandi eða er ólöglegt og missir mikið af fylgjendum– er það slaufunarmenning?“
- Einnig hægt að spyrja:
- Hvað er jákvætt við netið?
- Hvað þarf að passa sig á?
Mögulegt að tengja við stafrænt sjálfstraust og hvernig við getum verið góðir netnotendur.