1. Samanburðargreining
Síðustu daga höfum við farið yfir réttarvörslukerfi tveggja ólíkra landa, sem við þekkjum e.t.v. flest einna best út frá birtingarmynd þeirra í dægurmenningu.
Nú er lag að bera þessi tvö kerfi saman og ætlum við að gera það með því að finna eitt íslenskt dómsmál úr samtímanum og færa það inn í bandaríska réttarvörslukerfið í ríki að eigin vali.
1. Veldu íslenskt morðmál - skrifaðu um málið - segðu frá hvernig dæmt var í málinu.
2. Veldu fylki í Bandaríkjunum. Skrifaðu um það og segðu frá því hvers vegna þú valdir þetta fylki.
3. Fjallaðu um hvaða gerð af morði sé um að ræða. Er þetta 1. gráðu morð - 2. gráðu morð - 3. gráðu morð eða manndráp af gáleysi? Hvers vegna? Hvaða dóm mynduð þið sem dómarar gefa gerandanum ef þið hefðuð dæmt hann í því fylki sem þið völduð!
4. Hvað finnst ykkur um dóminn eins og hann var á Íslandi miðað við þá niðurstöðu sem þið fenguð í fylkinu í Bandaríkjunum?
Þið þurfið að uppfylla eftirfarandi:
- Þið þurfið að velja og rökstyðja val á íslensku sakamáli (best að taka fyrir morðmál). Hér þarf einnig að greina sakamálið og hverjar málalyktir urðu (dómur-frávísun-sýkna).
- Þið þurfið að velja og rökstyðja val á fylki sem þið ætlið að kynna ykkur og verður sögusvið ykkar greiningar.
- Þið þurfið að fara yfir það hvernig málið færi í gegn um kerfið sem þið völduð og hverjar málalyktir væru.
- Að lokum eigið þið að bera ykkar niðurstöðu saman við niðurstöðu sakamálsins í íslenska réttarvörslukerfinu.
Matsþættir:
- Rökstuðningur á vali á efnisþáttum – íslenska málinu sem þið völduð og fylkinu (20%) – Hversu vel rökstyðjið þið val ykkar og hversu vel hentar það fyrir verkefnið
- Gæði samanburðar (20%) – Hversu tæmandi og lýsandi er samanburðurinn – hversu vel þið setjið málið inni í þann refsiramma sem er í fylkinu.
- Niðurstaða (20%) – Hversu vel greinið þið frá niðurstöðum ykkar sem mótuð er af kerfinu sem þið völduð. Hvernig segið þið frá niðurstöðunum og hvers vegna þið komust að þessari niðurstöðu.
- Samantekt ykkar og ígrundun um niðurstöður. Hver teljið þið að eðlileg niðurstaða hefði verið og hvers vegna. Hvað fannst ykkur um þetta verkefni? (rökstuðningur)? (20%)
- Framsetning og lengd (10%)
Mögulegar heimildir
List of punishments for murder in the United States - Wikipedia
Ferli sakamála í Bandaríkjunum eins og komið er inn á í bókinni.