Kvikmyndarýni- The Abduction of Lisa Mcvey (gervigreind)
Completion requirements
Verkefni: „Believe Me: The Abduction of Lisa McVey“ – gagnrýnin greining og aðstoð með gervigreind
Skref 1 – Sjálfstæð vinna (án AI)
Horft er á heimildamyndina Believe Me: The Abduction of Lisa McVey og unnið út frá eigin athugunum og greiningu:
- Hver er titill myndarinnar, útgáfuár, leikstjóri, hvar sagan gerist og hvaða tímabil?
- Lýstu aðalpersónunni – hver er hún og hvernig manneskja?
- Lýstu andstæðingnum – hver eða hvað er það og hvernig kemur það fram?
- Hvernig tengist myndin kerfisbundnum rannsóknum a-b-c-d-e og birtist í rannsóknarvinnu lögreglunnar í Tampa (fjallað um í bókinni)? Hver voru þín persónulegu viðbrögð við myndinni?
Skref 2 – Aðstoð með gervigreind
Nú geturðu notað ChatGPT (eða aðra AI-aðstoð) til að:
- Fá staðfestar upplýsingar um titil, leikstjóra, útgáfuár, staðsetningu o.fl.
- Skoða greiningar á myndinni – túlkun, viðtökur og tilgang
- Útskýra hvernig lögreglurannsóknir eru framkvæmdar í svona málum
- Tengja myndina við fræðilega umfjöllun um rannsóknaraðferðir, kerfisbundna brotaathugun og meðferð þolenda
Mundu: Þú mátt ekki afrita texta frá AI – skrifaðu í eigin orðum og ígrundað.
Skref 3 – Samanburður og samantekt
Skrifaðu stutta samantekt þar sem þú:
- Berð saman þína eigin greiningu og innsýn sem AI gaf
- Metur hvað var gagnlegt við AI-aðstoð – og hvað ekki
- Segir frá því hvernig myndin hjálpaði þér að skilja betur hvernig rannsóknir, réttarkerfi og samfélagsleg viðbrögð virka
Markmið verkefnisins
- Þjálfa kvikmyndagreiningu og tengingu við rannsóknaraðferðir
- Nýta gervigreind með gagnrýnu hugarfari
- Skoða samfélagsleg áhrif heimildarmynda og meðferð þolenda í réttarkerfinu