Inngangur að afbrotafræði: Heimasíðugreining
Farðu inn á síðuna hér að neðan:
https://www.logreglan.is/utgafa/talnaefni/
Fjallaðu um eftirfarandi brotaflokka sem tengjast talnaefni lögreglunnar og segðu hvernig þróun hefur verið í brotaflokknum frá árinu 2001 og hvernig brot dreifast eftir landshlutum:
1. Öll afbrot (hvernig dreifast þau eftir landshlutum og hvers vegna er dreifingin svona misjöfn)?
2. Umferðarlagabrot (hvernig dreifast þau eftir undirflokkum)?
3. Hvað er sérstaklega slæmt varðandi uppfærslu og framsetningu gagna á síðunni?
4. Telur þú að þessi síða sé trúverðug og gögnin sem birtast á síðunni séu áreiðanleg. Hvernig geta dulin afbrot skekkt tölfræðina (hvers vegna eða hvers vegna ekki)?
Gott að hafa í huga:
Fjallið almennt um brotin, hvers eðlis þau eru, skilgreina hvað felst í brotunum, hvernig þau hafa þróast, hvernig þau dreifast eftir landshlutum og hverjir undirflokkarnir eru (kemur oftast fram neðst á síðunni). Einnig er gott að hafa í huga að lögregluumdæmin eru mis fjölmenn og tækifæri til afbrota eru ólík eftir þéttbýli og dreifbýli. Það þarf ekki að fjalla um hvert ár fyrir sig heldur hvernig þau hafa þróast almennt. Einnig eru afbrot ekki reiknuð á 100.000 íbúa sem gefur ekki lýsandi mynd fyrir þróun afbrota sem og samanburð á milli umdæma. Þá eru gögn ekki uppfærð reglulega