Skipulögð glæpastarfsemi og vændi - Rauðagerðismálið
Skoðaðu það myndefni sem eru í kaflanum á moodle um Rauðagerðismálið eða flettu upp á netinu upplýsingum um málið. Það er mikið af upplýsingum um þetta mál og bendir afbrotafræðingur á að málið virðist tengjast skipulagðri brotastarfsemi og í fyrsta sinn þar sem um hreint mafíumorð sé að ræða á Íslandi. Í þessu verkefni ætlum við að greina málið ítarlega og svara þeim spurningum sem hér fylgja og greina þá þætti sem finna má í myndböndunum.
1. Hvaða upplýsingar höfum við fengið um málið?
2. Hver voru helstu sönnunargögn í málinu?
3. Hver var heildarlengd dómanna í Héraðsdómi?
4. Hver var heildarlengd dómanna í Landsrétti?
5. Hver var heildarlengd dómanna í Hæstarétti?
6. Hversu lengi má áætla að hver sakborningur sitji inni í fangelsi miðað við lög um reynslulausn?
7. Hvað finnst þér um þá dóma sem sakborningarnir hlutu (rökstuðningur)?
8. Hvað finnst þér um að dómarnir hafi verið misjafnir á milli dómsstiga (rökstuðningur)?
9-10. Niðurstaða hvaða dómsstigs telur þú að sé rétt? Hérna verður þú að rökstyðja svarið!