A Life on Our Planet: Félagsfræðilegar kenningar um samfélag og loftslagsbreytingar
Félagsfræðilegar kenningar um samfélag og loftslagsbreytingar
Heimildarmyndin David Attenborough: A Life on Our Planet fjallar ekki aðeins um náttúruna heldur líka um mannlegt samfélag og hvernig það hefur þróast í átt að vistfræðilegri vá. Félagsfræðilegar kenningar hjálpa okkur að skilja hvernig samfélagsleg kerfi, gildi og framleiðsluhættir tengjast loftslagsbreytingum. Þrjár kenningar skýra þetta sérstaklega vel: marxísk gagnrýni á kapítalisma, weberísk skynsemishyggja og tæknihyggja, og kenning Becks um áhættusamfélagið.
Marxísk gagnrýni á kapítalisma og auðlindanýtingu
Karl Marx gagnrýndi kapítalisma fyrir að byggjast á framleiðslu og hagnaði frekar en á þörfum fólks eða verndun náttúrunnar. Í kapítalísku hagkerfi eru náttúruauðlindir nýttar sem hráefni án þess að tekið sé tillit til takmarkana vistkerfa. Þessi arðránshugsun hefur leitt til ofneyslu, skógareyðingar og loftslagsbreytinga. Í mynd Attenboroughs og einnig myndinni buy now sést hvernig hagvöxtur og neysla hafa eyðilagt líffræðilegan fjölbreytileika. Það endurspeglar spádóm Marx um að kapítalisminn muni eyða sjálfum sér með því að ganga á þau gildi og gæði sem hann byggir á – jörðina og vinnuaflið.
Weberísk skynsemishyggja og tæknihyggja
Max Weber lýsti þróun nútímasamfélaga sem vaxandi skynsemishyggju – við skipuleggjum og reiknum allt út frá hagkvæmni og árangri. Þetta hefur leitt til tæknihyggju, þar sem tækni og framleiðni eru orðin sjálfstæð markmið, jafnvel þótt þau grafi undan náttúrulegum takmörkunum. Attenborough sýnir hvernig mannkynið hefur tæknivætt náttúruna – við höfum stjórnað jarðvegum, hafinu og loftinu eins og framleiðsluvél. Weber myndi segja að þetta sé dæmi um „járnbúr skynseminnar“: við höfum skapað kerfi sem við ráðum ekki lengur yfir. Tæknin, sem átti að leysa vandann, hefur orðið hluti af honum.
Beck og „áhættusamfélagið“
Ulrich Beck taldi að í nútímasamfélögum hefðu náttúrulegar hættur breyst í manngerðar áhættur – afleiðingar tækni, iðnvæðingar og neyslu. Loftslagsbreytingar eru dæmi um slíkt áhættusamfélag: við búum til hættuna sjálf með lifnaðarháttum okkar. Beck taldi einnig að áhættan væri hnattræn og sameiginleg – hún gerir ekki greinarmun á ríkum og fátækum þjóðum, þó áhrifin séu misjöfn.
Attenborough leggur áherslu á að mannkynið verði að endurhugsa samfélagskerfi sín og gildismat, sem er í samræmi við hugmynd Becks um að við þurfum að skapa sjálfbært samfélag.
Attempts allowed: 1