Könnun: Rannsóknarverkefni - könnun
Leiðbeiningar fyrir könnun og úrvinnslu gagna í Google Forms og Excel
1. Uppsetning könnunar í Google Forms
Könnunin verður sett upp í Google Forms, sem er einfalt og notendavænt kerfi til að búa til spurningalista. Við viljum hafa könnunina skýra og einfalda, með 3-5 spurningum auk bakgrunnsbreyta.
Bakgrunnsbreytur
- Kyn (karl, kona, annað)
- Aldur (t.d. undir 16 ára, 16-17 árs, 18-19 ára og 20 ára og eldri)
- Búseta (höfuðborgarsvæði, landsbyggð o.s.frv.)
Þegar könnunin hefur verið sett upp og svör hafa borist, flytjum við gögnin yfir í Excel fyrir frekari úrvinnslu.
2. Úrvinnsla gagna í Excel
2.1 Flytja gögn úr Google Forms í Excel
- Opnið Google Forms og farið í svarhluta könnunarinnar.
- Smellið á „Export to Excel“ eða hlaðið niður svörum í CSV-skrá og opnið hana í Excel.
- Skrifið yfir fyrirsagnir dálkanna eftir því sem þið viljið einfalda skipulagið.
Nú höfum við gögnin og vinnum áfram með þau í þremur skrefum:
2.2 Undirbúningur gagna
Við vinnum með gögnin í þremur gluggum:
- Frumgögn – Upprunaleg gögn úr könnuninni (ekki breyta).
- Vinnslugögn – Afrit af frumgögnum þar sem úrvinnsla fer fram.
- Skilgreiningar – Tafla með gildum sem úthlutað er tölulegum táknum.
Skilgreining breyta:
- Kyn: Karl = 1, Kona = 2, Annað = 3
- Aldur: Undir 16 ára = 1, 16-18 ára = 2, 19-21 ára = 3, 22 ára og eldri = 4
Við færum nú gögnin frá Frumgögnum yfir í Vinnslugögn og kóðum þau með tölulegum gildum.
2.3 Kóðun breyta í Excel
- Veljið Vinnslugögn og færðu öll gögn yfir í Dálk B.
- Í Dálk A skrifið þið númerun fyrir hvern þátttakanda (1, 2, 3… upp að síðasta viðmælanda).
- Opnið leitargluggann með því að ýta á Ctrl + F og leitið að orðinu „Karl“ og veljið Breyta öllu í 1.
- Endurtakið fyrir önnur gildi (t.d. „Kona“ → 2, „Annað“ → 3).
- Gerið þetta fyrir allar breytur sem þið hafið skilgreint í Skilgreiningar-glugganum.
Nú erum við komin með tölulegar breytur í Vinnslugögn, sem hægt er að vinna áfram með.
3. Greining gagna með Pivot-töflu
3.1 Búa til Pivot-töflu í Excel
- Veljið Vinnslugögn.
- Smellið á Insert → Pivot Table.
- Búið til nýjan glugga fyrir úrvinnslu (t.d. hægt að nefna hann Tengsl).
- Veljið Númer (nr.) og færið í Values.
- Veljið þá breytu sem á að greina (t.d. kyn) og færðu hana í Rows.
- Veljið fylgibreytu (t.d. viðhorf til lesturs) og setjið í Columns.
- Breytið stillingum gildissviðs úr Sum yfir í Count (Fjöldi).
Nú sjáum við dreifingu gilda í töfluformi.
3.2 Útreikningur á hlutföllum
- Afritið pivot-töfluna og límið hana inn fyrir neðan.
- Í neðri töflunni deilið hverju gildi með heildarfjölda fyrir þá breytu sem verið er að skoða.
- Smellið á %-táknið til að fá niðurstöðurnar í prósentum.
Dæmi:
Ef 80 karlar svöruðu spurningunni og 50 þeirra kjósa að lesa rafbækur, reiknum við hlutfallið þannig:
- =50/80 → Gefur 62,5%
- Endurtakið fyrir öll gildi í töflunni.
Nú sjáum við hlutfall þeirra sem velja bók eða rafbók greint eftir kyni.
3.3 Gerð myndrits
- Veljið útreiknaða töfluna.
- Smellið á Insert → Chart og veljið tegund myndrits (t.d. stöplarit eða kökurit).
- Skýrið myndritið með lýsandi fyrirsögn.
- Flytjið myndritið yfir í Word skjalið með niðurstöðunum.
4. Skref fyrir skref samantekt
- Hanna könnun í Google Forms með 3-5 spurningum.
- Flytja gögn í Excel og skipta í Frumgögn, Vinnslugögn og Skilgreiningar.
- Kóða gögnin með tölulegum gildum (t.d. Karl = 1, Kona = 2).
- Nota Pivot-töflu til að greina tengsl milli breyta.
- Reikna hlutföll og setja upp prósentutöflu.
- Búa til myndrit og flytja niðurstöður í Word-skjal.
5. Niðurstöður í Word
Að lokum skaltu færa niðurstöðurnar yfir í Word og fylgja þessari uppsetningu:
Niðurstöður úr könnun
- Hver var rannsóknarspurningin?
- Hverjar voru helstu niðurstöður?
- Myndrit sem sýnir dreifingu svara eftir breytum.
- Stutt túlkun á því sem myndritið sýnir.
Dæmi um túlkun:
„Samkvæmt könnuninni lesa karlar frekar rafbækur (62,5%) en konur (48%). Aftur á móti sögðust 52% kvenna kjósa prentaðar bækur samanborið við 37% karla. Þetta bendir til þess að kyn geti haft áhrif á lestur bóka.“
Samantekt og mat á könnuninni
- Hvernig gekk að framkvæma könnunina?
- Voru einhverjar skekkjur eða takmarkanir?
- Hvað hefði mátt gera betur?
Dæmi:
„Svarhlutfallið var viðunandi, en mögulega hefði mátt fá fjölbreyttara úrtak. Þeir sem tóku þátt voru flestir á aldrinum 16-20 ára, sem gæti skekkt niðurstöðurnar. Í framtíðinni væri hægt að útvíkka könnunina og nota aðrar úrtaksaðferðir.“