Verkefni 1 — Fréttir og tölfræði
Veldu eina frétt af netinu um t.d.
afbrot • fátækt • innflytjendur • jafnrétti • loftslagsbreytingar
Finndu síðan tölfræði um sama efni á t.d.:
Hagstofu Íslands eða Our World in Data.
Skrifaðu stutt svar (10–12 línur) þar sem þú:
- Segir frá því hvað fréttin heldur fram
- Lýsir hvað tölfræðin sýnir
- Útskýrir hvort fréttin passi við gögnin eða ýkir
- Notar minnst eitt hugtak úr kaflanum
(t.d. þjóðfélagsleg goðsögn, tiltækisvilla, staðfestingarvilla)