Að rannsaka samfélagið: 1. Heimasíðugreining (gervigreind)
Verkefni: Fólksfjöldi heimsins
Byggt á vefnum Worldometers
Skref 1 – Sjálfstæð vinna (án AI)
Farðu á vef Worldometers og svaraðu spurningunum hér fyrir neðan með eigin orðum og án aðstoðar frá gervigreind.
Spurningar:
- Hversu margir eru íbúar jarðar núna?
- Hve margir hafa látist það sem af er árinu?
- Hversu mikið hefur jarðarbúum fjölgað/fækkað það sem af er degi?
- Hvernig hefur fólksfjöldi í heiminum þróast frá árinu 300 til dagsins í dag?
- Hvernig gera spár ráð fyrir þróun fólksfjölda til ársins 2100?
- Hvernig hefur árleg fjölgun fólks verið frá 1950?
- Hvaða heimsálfa er fjölmennust?
- Í hvaða heimsálfu er mest aukning fólksfjölda?
- Á hvaða svæðum er fólksfjöldi þéttastur?
- Í hvaða tveimur löndum búa flestir?
Skref 2 – Aðstoð með gervigreind
Farðu nú í gervigreindarforrit (t.d. ChatGPT) og sláðu inn spurningar úr verkefninu til að:
- fá frekari gögn, samantektir eða útskýringar
- fá yfirlit yfir þróun, samanburð milli landa og tímabila
- fá fram hugsanlegar skýringar á þróun
Dæmi um texta:
„Segðu mér hvernig fólksfjöldi í heiminum hefur breyst frá 300 e.Kr. til 2025 og hvaða þættir hafa haft mest áhrif á fjölgun.“
Athugið: Ekki má afrita texta frá AI beint. Skrifaðu eigin samantekt út frá upplýsingunum sem þú færð.
Skref 3 – Samanburður og heildarniðurstaða
- Berðu saman það sem þú fannst sjálfur og það sem AI gaf þér.
- Hvað var líkt og hvað var ólíkt?
- Hvaða upplýsingar sem þú fékkst frá gervigreind fannst þér koma sérstaklega að gagni?
- Skrifaðu samantekt þar sem þú lýsir því hvað þú lærðir og hvernig AI hjálpaði – eða hjálpaði ekki.
Spurning til ígrundunar:
Hvernig getur gervigreind verið nytsamleg við gagnaöflun – og hverjar eru hætturnar ef við treystum henni blint?
Markmið verkefnisins
- Þróa gagnrýna hugsun um gögn og heimildir
- Læra að nýta gervigreind sem stuðningstól – ekki sem svarvél
- Auka skilning á þróun fólksfjölda og samfélagslegra þátta