Rannsóknir á kynhneigð: 5. Heimasíðugreining (gervigreind)
Completion requirements
Verkefni: Réttindi samkynhneigðra – gagnrýnin greining með gervigreind
Skoðaðu vefinn Our World in Data og notaðu eftirfarandi hlekki:
Skref 1 – Sjálfstæð vinna (án AI)
Svaraðu eftirfarandi með því að vinna sjálfstætt með upplýsingarnar á síðunni:
- Hvað mælir LGBT Legal Equality Index og hvernig er það skilgreint?
- Á hvaða svæðum heimsins virðast réttindi samkynhneigðra vera best?
- Á hvaða svæðum eru réttindin verst?
- Finndu eitt land þar sem réttindi hinsegin fólks eru fótum troðin – hvað einkennir það?
- Finndu eitt land þar sem réttindi hinsegin fólks eru virt – hvað einkennir það?
- Tengdu saman við Human Rights Index – eru þessi lönd almennt með há/lág mannréttindi?
- Hvernig finnst þér staðan í heiminum? Hvaða tilfinningar vekur þessi samanburður?
Skref 2 – Aðstoð með gervigreind
Notaðu ChatGPT eða sambærilega gervigreind til að:
- Útskýra hvernig LGBT Legal Equality Index er reiknað
- Fá dæmi um lönd með há/lág réttindi samkynhneigðra og af hverju
- Túlka tengsl milli almennra mannréttinda og réttinda hinsegin fólks
- Hjálpa þér að bera saman tvö lönd út frá báðum mælikvörðum
Mundu: Ekki afrita beint – skrifaðu með eigin orðum!
Skref 3 – Samanburður og samantekt
Skrifaðu stutta niðurstöðu þar sem þú:
- Berð saman eigin greiningu og innsýn AI
- Lýsir hvernig AI hjálpaði – eða ekki
- Segir frá því hvað þú lærðir um réttindi hinsegin fólks og ólíkar aðstæður í heiminum
Markmið verkefnisins
- Að þjálfa þig í gagnrýninni greiningu á mannréttindum
- Að nýta opinber gögn og mælikvarða
- Að beita gervigreind sem stuðningi – ekki sem staðgengli