Kenningar og sjálfsmynd - rökræður
Rökræðuverkefni: Forréttindi, hæfni og árangur
Ályktun:
„Forréttindi í uppvexti skipta meira máli fyrir árangur en einstaklingsbundin hæfni.“
Verkefni
Nemendur taka afstöðu með eða á móti ályktuninni og rökstyðja hana með hugtökum og dæmum úr kaflanum.
Kröfur
Nota að minnsta kosti 5 hugtök úr kaflanum
Vísa í a.m.k. eitt dæmi um Jón Jónsson eða Friðrik Dór Jónsson
Vísa í a.m.k. eitt dæmi um Hörð Torfason
Rökin eiga að byggja á félagsfræðilegum kenningum, ekki persónulegu mati
Hugmyndir að rökum – með ályktun
Forréttindi skapa aðgang að stuðningi, viðurkenningu og tækifærum
Fjölskylda, skóli og félagslegt taumhald styrkja sjálfsmynd
Jaðarsetning, stimplun og útskúfun draga úr líkum á árangri
Valdakerfi og hugmyndafræðilegt vald móta hver fær að njóta hæfileika
Hugmyndir að rökum – gegn ályktun
Einstaklingsbundin seigla, vinna og hæfni skipta sköpum
Hörður sýnir meðvitundarvakningu og félagslegan styrk þrátt fyrir jaðarsetningu
Forréttindi tryggja ekki árangur án ábyrgðar og vinnu
Sjálfsmynd og sjálfstraust eru mótanleg yfir tíma
Verkefnaskil
Nemandi skrifar rökræður 150 til 250 orð:
Hvort skipti meira máli í dæmunum – félagslegt umhverfi eða einstaklingsbundin hæfni – og af hverju?