Samskipti: Heimasíðugreining (gervigreind)
Verkefni: Samskiptaboðorðin – sjálfstæð hugsun og gervigreindarstuðningur
Þú átt að velja eitt verkefni hér að neðan og vinna það í þremur skrefum. Markmiðið er að temja þér sjálfstæða hugsun, notkun gervigreindar sem stuðning og skrifa niðurstöðu sem sýnir þinn skilning.
Skref 1
Svaraðu verkefninu með þínum eigin orðum, byggt á eigin skilningi.
Skref 2
Spurðu gervigreind (t.d. ChatGPT) sömu spurningu eða verkefni og þú varst að vinna í skrefi 1. Skráðu helstu atriði úr svari gervigreindarinnar.
Skref 3
Berðu saman þitt eigið svar og svar gervigreindarinnar.
Hvað fannst þér vel gert í þínu eigin svari? Hvað bætti AI við?
Skrifaðu svo heildarniðurstöðu með þínum eigin orðum, þar sem þú sameinar það besta úr báðum nálgunum.
Verkefni A – Samskiptaboðorðin
Farðu inn á á vef Landlæknis:
https://www.landlaeknir.is/servlet/file/store93/item15424/Samskiptabodordin.pdf
Veldu að vinna með eftirfarandi hugtök (eitt í einu eða öll):
- Virðing
- Einlægni
- Hluttekning
- Umhyggja
- Trúnaður
Fyrir hvert hugtak:
– Skilgreindu hvað er átt við.
– Taktu dæmi um hvernig það birtist í daglegu lífi.
Verkefni B – Samskipti við barn
Þú ert að tala við barn sem hefur orðið fyrir einhverju erfiðu eða gert eitthvað sem tekur á tilfinningar þess.
– Hvernig er best að tala við barnið?
– Hvað þarf að hafa í huga?
– Hvaða samskiptaboðorð skipta mestu máli í þessu samhengi?
Ígrundun í lokin
Hvernig hjálpaði gervigreindin þér í þessu verkefni?
Hvað fannst þér skipta mestu máli?