Félagsfræðileg hugsun: Heimasíðugreining
Veröldin okkar í gögnum (Our World in Data (OWID)) er vísindalegt netrit sem fjallar um stór hnattræn vandamál eins og fátækt, sjúkdóma, hungur, loftslagsbreytingar, stríð, tilvistaráhættu og ójöfnuð. Forsvarmaður síðunnar er Max Roser, félagsfræðingur og þróunarhagfræðingur. Rannsóknarhópurinn hefur aðsetur við Háskólann í Oxford.
Farðu inn á síðuna:
1. Hvar í heiminum (svæði eða heimsálfur) er mest algild fátækt (minna en 3 $) á einstakling á dag til að lifa af)?
2. Í hvaða þremur löndum er mest fátækt í heiminum?
3. Veldu eitt af þessum löndum og segðu frá því?
Farðu inn á þessa síðu:
https://ourworldindata.org/grapher/covid-vaccination-doses-per-capita?tab=map&time=latest
4. Hvernig dreifist hlutfall bólusettra eftir svæðum heimsins?
5. Hvernig eru tengsl efnahagsstöðu ríkja og bólusetninga (gott að bera saman bæði kortin)?
6. Veldu eitt af fimm fátækustu löndum heims. Hversu hátt hlutfall einstaklinga í landinu eru bólusettir?
7. Hvað kann að skýra þessi tengsl?
8. Hvað finnst þér um þessi tengsl?