Innflytjendur og flóttamenn: Ritun 1 (gervigreind)
Verkefni: Innflytjendur og flóttamenn – gagnrýnin notkun gervigreindar
Þrep 1: Sjálfstæð vinna (án gervigreindar)
Skrifaðu stuttan texta (150–250 orð) þar sem þú útskýrir muninn á innflytjendum og flóttamönnum og notar a.m.k. fimm orð úr listanum hér að neðan. Reyndu að útskýra helstu ástæður fólksflutninga og hvernig samfélög bregðast við þeim. Taktu afstöðu: Á fjölmenningarhyggja eða félagsleg blöndun að vera markmið? Útskýrðu hvers vegna. Notaðu þitt eigið orðalag og skilning.
Þrep 2: Aðstoð með gervigreind
Spyrðu ChatGPT (eða sambærilegan AI) um aðstoð við að skrifa texta um innflytjendur og flóttamenn. Beindu sérstaklega athyglinni að því að fá góða útskýringu á hugtökunum „flóttamaður“, „hælisleitandi“ og „fjölmenningarhyggja“, og biðjið um dæmi úr samtímanum eða frá Íslandi. Hafðu textann á 150–250 orðum.
Þrep 3: Samanburður og heildarniðurstaða
Berðu saman þinn eigin texta og textann sem gervigreindin hjálpaði þér að semja. Hvað var sterkara í þínum eigin texta? Hvað bætti AI við sem hjálpaði þér? Var eitthvað sem þér fannst rangt eða ófullnægjandi í svörum AI? Skrivaðu samantekt (100 orð) þar sem þú sameinar þekkingu þína og innsýn frá gervigreind.