Íþróttafélagsfræði: Ritun 1 (gervigreind)
Verkefni: Íþróttafélagsfræði og gagnrýnin notkun gervigreindar
Hugtök til að styðjast við:
Íþróttafélagsfræði – Fordómar – Guðni Th. – Styrmir – Gobineau – Spencer – Kynþáttahyggja – Félagslegur Darwinismi – Viðbragðshraðakenningin – Goðsögnin um miðganginn – Mæðrakenningar – Sálfræðikenningar – Heimska íþróttakenningin – Rökvilla félagslegs Darwinisma – Fordómar í knattspyrnuheiminum – Mo Salah áhrifin – Fordómar innan stafrænna miðla – Sameiningarmáttur íþrótta – Kraftaverkið í Istanbul – Christian Eriksen
Þrep 1: Sjálfstæð vinna (án gervigreindar)
Skrifaðu sjálf(ur) 200–250 orða samantekt um íþróttafélagsfræði þar sem þú reynir að nota nokkur af hugtökunum hér að ofan. Fjallaðu t.d. um hvernig fordómar birtast í íþróttum, hvað félagsfræðikenningar segja um tengsl íþrótta og samfélags, eða um jákvæð áhrif sameiningar í gegnum íþróttir.
Þrep 2: Aðstoð frá gervigreind
Búðu til nýja útgáfu af textanum þínum með hjálp frá gervigreind (t.d. ChatGPT). Spurðu t.d.:
„Geturðu hjálpað mér að skrifa 200–250 orða texta um íþróttafélagsfræði sem notar hugtökin X, Y og Z?“
Þrep 3: Samanburður og niðurstaða
Berðu saman þína eigin útgáfu og textann frá gervigreind. Hver eru helstu munirnir? Hvort var skýrara, betra uppbyggt eða með betri notkun hugtaka? Skrifaðu stutta niðurstöðu þar sem þú sameinar það besta úr báðum og bætir við þinni eigin rödd.
Markmið verkefnisins er að þú læri að nýta gervigreind sem tæki – ekki sem skyndilausn.