Félagssálfræði - heimildagreining
Completion requirements
Verkefni: Heimildagreining í félagssálfræði
Leiðbeiningar fyrir nemendur:
- Finndu eina heimild úr kaflanum sem þú telur mikilvæga eða áhugaverða.
- Skrifaðu stutta greiningu (5–10 línur) þar sem þú svarar eftirfarandi spurningum:
Heimildagreining – spurningar:
- Hvaða heimild valdirðu? (t.d. höfundur, ár og efni heimildar)
- Um hvað fjallar þessi heimild?
- Hver er tilgangur hennar í textanum?
- Hversu áreiðanleg finnst þér heimildin vera? (Er þetta fræðileg heimild? Er höfundurinn sérfræðingur?)
- Ertu sammála höfundi? Af hverju / af hverju ekki?
- Heldurðu að heimildin hafi áhrif á það hvernig lesandinn hugsar um efnið? Útskýrðu.
Dæmi um heimildir sem hægt er að greina:
-
Mohamed, M. – Heimildarþáttaröð um peoples temple
- Aronson, Wilson og Akert (2022) – notuð víða, klassísk fræðibók
- Zimbardo (2007) – fræg bók, en umdeild tilraun
- Le Texier (2024) – nýrri gagnrýni á eldri rannsókn
- Howard og Moore (2016) – kvikmynd (Zootopia) sem notuð er sem dæmi
- The Social Dilemma (Orlowski, 2020) – heimildarmynd um samfélagsmiðla
- Solomon (2015) – Kitty Genovese og afskiptaleysi