Frávik og félagsleg völd: 1. Heimasíðugreining
Síðan "Hinsegin frá ö til a" fjallar m.a. um margar ólíkar hliðar kyns, kynvitundar, kyngervis og kynhneigðar. Farðu inn á síðuna og fjallaðu um tvö atriði sem þér fannst áhugaverðust á síðunni. Skilgreindu það sem þú fjallar um og lýstu sem og að segja hvað þér finnst. Hvernig fannst þér aðgengi að upplýsingum á síðunni? Fannst þér auðvelt að leita þér upplýsinga?
Dæmi:
Kynleiðrétting: Um er að ræða ferli sem sem fólk fer í gegnum til að leiðrétta kyn sitt. Leiðréttingaferlið getur falið í sér hormónainntöku, brjóstnám eða aðgerðir á kynfærum. Ferlið þarf ekki að vísa eingöngu til skurðaðgerða á kynfærum þó að slík aðferð geti verið einn þáttur kynleiðréttingarferlis. Augljóslega fer fólk ekki út í slíkar aðgerðir á líkama sínum nema að vel ígrunduðu máli. Eðli inngripana sýna að fólk velur ekki að fara þessa leið nema að vera sannfært um að þeirra líffræðilegi veruleiki endurspegli ekki það kyn sem fólk upplifir sig vera.
Ég tel að þetta ferli sé mjög mikilvægt fyrir fólk og ef maður setur sig í spor þessara einstaklinga er ég sannfærður um að það myndi skipta miklu máli að hafa þetta val og að það sé þjóðfélagslega samþykkt.