Hópverkefni – Upprifjun og verkefnaþróun
Hópverkefni – Upprifjun og verkefnaþróun fyrir lokaviku
Hver hópur fær úthlutað ákveðnum kafla eða köflum úr kennsluefninu. Verkefnin eru í sama sniði og þið hafið verið að vinna í Moodle í vetur. Verkefnið byggir á því að vinna með helstu hugtök, efnisatriði og skilgreiningar úr kaflanum og búa til spurningar í þeim verkefnaformum sem við höfum notað í Moodle. Gott er að rýna kaflann og skoða hugtakalista aftast í bókinni.
Markmið verkefnisins er að læra með því að velja lykilhugtök, skilja efnið og búa til eigin verkefni. Þið eigið að vanda framsetninguna, með skýrum texta og réttum skilgreiningum. Passið að yfirfara verkefnin þannig að hugtök skarist ekki á milli flokka.
Hver hópur skilar eftirfarandi:
1. Orðapýramídi (15 hugtök)
Búið til orðapýramída með 5 hæðum úr hugtökum í kaflanum.
- Hæð 1: 1 atriði
- Hæð 2: 2 atriði
- Hæð 3: 3 atriði
- Hæð 4: 4 atriði
- Hæð 5: 5 atriði
Samtals: Fimm flokkar og 15 hugtök.
Flokkurinn er yfirhugtak pýramídans (t.d. rannsóknaraðferðir, fjölskylda, tegundir hlutleysingar, frumkvöðlar félagsfræðinnar o.s.frv.). Skilgreiningin efst, síðan hugtök fyrir hvern flokk.
2. Fjórflokkar (16 hugtök)
Setjið upp 4 skilgreiningar (t.d. kenningar í félagsfræði, einkenni samfélags veiðimanna og safnara, fjórða iðnbyltingin). Hverri skilgreiningu fylgja fjögur viðeigandi hugtök. Passið að hugtök skarist ekki á milli flokka.
4 skilgreiningar × 4 atriði = 16 atriði.
Skilgreiningarnar þurfa að vera skýrar og stuttar, atriðin eiga að vera rétt flokkuð og helst eiga hugtök að vera aðeins eitt orð, stundum þurfa þau þó að vera tvö en ekki meira en þrjú.
3. Orðademantur (16 hugtök)
Búið til orðademant úr hugtökum kaflans.
Bygging demantsins er þessi:
- 1 atriði
- 2 atriði
- 3 atriði
- 4 atriði
- 3 atriði
- 2 atriði
- 1 atriði
Samtals: 16 hugtök.
Flokkurinn er yfirhugtak demantsins (t.d. rannsóknaraðferðir, fjölskylda, tegundir hlutleysingar, frumkvöðlar félagsfræðinnar o.s.frv.). Skilgreiningin efst, síðan hugtök fyrir hvern flokk.
4. Krossaspurningar – 5 spurningar
Búið til 5 krossaspurningar úr texta og hugtökum kaflans.
Hver spurning á að:
- byggjast á efnisatriðum úr kaflanum,
- hafa 1 rétt svar og 3 röng,
- vera skýr, án óþarfa orða,
- hafa jafnvægi í lengd svarsætanna (rétt svar á ekki að vera augljóst).
5. Satt/ósatt – 5 spurningar
Skrifið 6 satt/ósatt spurningar, þar sem fullyrðingarnar eiga að vera:
- stuttar,
- skýrar,
- og byggðar á staðreyndum úr kaflanum.
- 3 satt og 3 ósatt
6. Tengispurning (pörun) – 5 pör
Setjið upp tengispurningu þar sem nemendur eiga að para saman 5 hugtök og 5 skilgreiningar.
- 5 hugtök úr kaflanum
- 5 stuttar og nákvæmar skilgreiningar
Gætið þess að hvert hugtak og skilgreining passi nákvæmlega saman.
Skil
- Skilið verkefninu í einni sameinaðri Word-skrá.
- Notið skýrar fyrirsagnir fyrir hvern verkþátt.
- Vinnið saman í hóp – hver og einn þarf að leggja sitt af mörkum.