Kyn og kyngervi: 1. Heimasíðugreining
Átakið #kvennastarf vísar til mýtu sem flestir landsmenn kannast við, mýtunnar um að eðlilegt sé að starfsgreinar flokkist í kvennastörf og karlastörf. Velt er upp spurningunni; hvaða störf eru kvennastörf? Svarið er að kynferði á ekki að þurfa hafa áhrif á námsval eða starfsvettvang. Hefðbundin verkaskipting kynjanna er orðin úrelt og á ekki lengur við í nútímasamfélagi. Allt starf er kvennastarf. Konur eiga að geta starfað við það sem þeim sýnist og það sama gildir um karlmenn. Iðn- og verkmenntaskólar á Íslandi stefna á að fjölga fagmenntuðu fólki og markmið þeirra er að 20% grunnskólanema velji starfsmenntun árið 2025 og 30% árið 2030. Vefsíðan kvennastarf.is tekur saman tölfræði um fjölda nemenda í iðn- og verknámsgreinum.
1. Hvernig skiptast kynjahlutföll þeirra sem stunda nám í pípulögnum í dag?
2. Hve hátt hlutfall kvenna hafa lokið sveinsprófi í pípulögnum samanborið við karla?
3. Hvernig er hlutfall kvenna sem skráð eru í nám í bifvélavirkjun í Borgarholtsskóla og VMA í samanburði við karla?
4. Hvernig er hlutfall kvenna sem stunda nám í forritun í FS og Tækniskólanum í samanburði við karla?
5. Hvernig er hlutfall kvenna sem hafa lokið sveinsprófi í rafvirkjun í samanburði við karla?
6. Hvernig er hlutfall kvenna sem hafa lokið sveinsprófi í matreiðslu í samanburði við karla?
7. Hve hátt hlutfall kvenna eru skráð í nám í skipstjórn samanborið við karla?
8-10. Hvað finnst þér um staðalmyndir kvenna og karlastarfa? Hvernig fannst þér þessi síða?