Fátækt og félagsleg staða: 1. rökræður
Ítarleg lýsing á uppsetningu, hlutverkaskiptingu og áhersluþáttum rökræðna má finna í leiðbeiningum fyrir rökræður. Ef nemandi komst ekki í rökræður getur hann skrifað rökræður.
Efni:
Með eða á móti félagslegri lagskiptingu. Öll samfélög einkennast af félagslegri lagskiptingu. Í þessum rökræðum ætlar þú að taka afstöðu. Þarf ekki að vera að sú afstaða sem þú tekur endurspegli fullkomlega þín persónulegu sjónarmið en þú þarft að setja þig í stellingar með eða á móti. Byggðu upp rök með því að vitna í efni úr kaflanum eða efni sem þú finnur sjálfur sem og að segja þína skoðun (100 til 150 orð).
Félagsleg lagskipting er mikilvæg! Ómögulegt er að búa til samfélag sem einkennist ekki af félagslegri lagskiptingu!
Mikill kostur er að taka dæmi sem þú getur tengt við þitt samfélag eða daglegt líf.
Leiðbeiningar fyrir ritun rökræðna
1. Taktu afstöðu - Félagsleg lagskipting er nauðsynleg - óþarfi eða blanda
2. Taktu dæmi úr raunveruleikanum eða tilbúið dæmi til að rökstyðja það sem þú fjallar um.
3. Sett verkefnið upp í word
4. Hafðu línubilið 1.5
5. Hafðu textann jafnaðan (justify)
6. Notaðu Calibri letur.
Þú getur notað einhver af þessum vefsvæðum eða annað aðrar heimildir sem þú finnur ef þú vilt.
Heimildaskráning verkefnavinnu
https://ourworldindata.org/grapher/economic-inequality-gini-index
https://ourworldindata.org/grapher/gdp-per-capita-worldbank
https://ourworldindata.org/grapher/share-living-on-less-than-190-marimekko
https://hagstofa.is/talnaefni/samfelag/lifskjor/efnislegur-skortur/
- 19 December 2025, 4:01 PM